Rúna byrjaði í nýjum skóla í dag. Kennarinn tók á móti okkur í morgun og bauð Rúnu velkomna. Rúna verður í tæplega 50 manna bekkjarhóp en 6 ára bekkurinn er allur hafður saman en þrír kennarar sinna hópnum. Svo skoðuðum við Neðstaland sem er frístundaheimilið í Fossvoginum. Rúnu leist mjög vel á þetta allt saman. Hún ætlar svo að fara í ballett aftur í vetur og svo langar hana að læra á hljóðfæri.
24. ágúst 2009
1. skóladagurinn
Rúna byrjaði í nýjum skóla í dag. Kennarinn tók á móti okkur í morgun og bauð Rúnu velkomna. Rúna verður í tæplega 50 manna bekkjarhóp en 6 ára bekkurinn er allur hafður saman en þrír kennarar sinna hópnum. Svo skoðuðum við Neðstaland sem er frístundaheimilið í Fossvoginum. Rúnu leist mjög vel á þetta allt saman. Hún ætlar svo að fara í ballett aftur í vetur og svo langar hana að læra á hljóðfæri.
23. ágúst 2009
22. ágúst 2009
15. ágúst 2009
Eitthvað lost þessi.

Í eða Á Stykkishólmi er þessa verslun að finna. Hef ekki farið inní hana en fannst nafnið fyndið. Þau eru svo auðvitað með heimasíðu
9. ágúst 2009
Guðrún Margrét
28. júní 2009
6. júní 2009
Draumaliðsmót Pepsí 2009
Rúna Lóa tók þátt í sínu fyrsta fótboltamóti í morgun. Draumaliðsmót Pepsí er haldið ár hvert af Íþróttfélagi Þróttar og spilaði 8. flokkur á Valbjarnarvelli. Stelpurnar voru hörkuduglegar og oftast nær hlupu þær í átt að réttu marki. Rúna var mjög ánægð með þetta og fékk að spila úti og í marki.
Efnisorð
Fótbolti,
Íþróttamót,
Rúna Lóa,
Verðlaun,
Víkingur
5. júní 2009
4. júní 2009
2. júní 2009
1. júní 2009
Ingjaldssandur
Kirkjan á Ingjaldssandi.
Fórum frá Núpi í Dýrafirði í heimsókn í eina af fámennari sóknum landsins, 2 sóknarbörn. Frábær ferð í Dýrafjörðinn tók yfir 1000 myndir vonandi næ ég 1 % af sæmilegum myndum.
23. apríl 2009
14. apríl 2009
Fossvogur í morgun
Jói sagði þegar við fluttum í Fossvoginn að leynt og ljóst stefndum við í að flytja í Breiðholtið aftur.. Ekki svo galin hugmynd segi ég... Veit að Ragga verður mér seint sammála. En Fossvogurinn er yndislegur meira að segja á dumbungsdegi eins og í dag.
Ferming Sindra Snæs
Sindri Snær fermist þann 26. apríl nk. Hann ákvað að láta ferma sig borgaralega og fer athöfnin fram í Háskólabíó kl. 1100. Boðið verður til veislu kl. 13.30 í sal á annarri hæð að Sóltúni 20.
Svo 2007
Annar í páskum og þá var fákurinn viðraður. Fyrsta skipti í vetur á racer. Farnir voru 37km úr Fossvogi beina leið uppí Elliðárdal framhjá nýju hverfunum í Kópavogi. Þaðan í Heiðmörk og inní Hafnafjörð við gamla kirkjugarðinn. Rennt í gegnum norðurbæinn svo í Garðabæinn og í framhaldinu farið um Kársnesið. Mjög skemmtileg og greiðfær leið.
Puttaprjón
Rúna Lóa byrjaði í dag að puttaprjóna. Hún fann sér tösku sem hún geymir garnið í og svo ætlar hún að taka mynd af afrakstrinum. Hún ætlar nefnilega að búa til puttaprjónabók. Sounds Familiar??
13. apríl 2009
12. apríl 2009
31. mars 2009
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





