3. ágúst 2004
í óstuði við lærdóminn
algert óstuð... Er að lesa upplýsingamiðlun núna og það er svona jafn spennandi og vera heima með gubbupest. en þetta verður að gerast núna þannig að það er um að gera að setja sig í gírinn - verð duglegri og einbeittari á morgun (manjana) Ég tók út niðurtalninguna á för mína til Täby því það skiptir engu máli.. ég er væntanlega eini lesandi þessa vefs og veit uppá hár hvenær ég fer og hvenær Ragga og krakkarnir strunsa í burtu..
Algerlega búinn að missa það
óttalega stutt í að Ragga, Sindri, Rúna og Hlynur fara til Sverige.. Ég hef ekkert nennt að vera skrifa núna enda erum við búin að vera upp fyrir haus í flutingum og skemmtilegheitum. Erum núna flutt til Mömmu góðu sem var svo yndisleg að lána okkur íbúðína sína. Hótelíbúðin sem við vorum búin að taka frá var eins og 2 flokks hóruhús (ekki það að ég viti nákvæmlega hvernig það lítur út) en tilfinningin var eitthvað spes þarna inni. Þannig að nú erum við hér 4 í lítilli 2ja herberja íbúð og látum fara vel um okkur á dýnum og býðum eftir því að 14.ágúst komi.. og það er skrítin tilfinning..
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
