24. júní 2004

Nýjar myndir


vorum að koma frá Svíþjóð og það var mjög yndislegt að vera hjá Möggu og Henrik, Algjörlega óskiljanleg tilviljun að þau skuli flytja til íslands um leið og við flytjum til Svíþjóðar. Rúna Lóa skoðaði leikskólan sinn sem heitir Högåsan og er í 2ja mínútna fjarlægð frá húsinu okkar, hún ærðist þegar hún kom þangað inn.. hvorki meira né minna.. vildi bara strax fara að leika og ég sé hana ekki alveg fíla 2ja vikna aðlögunartíma Svíanna en það verður samt gaman þegar hún byrjar að leika með öðrum krökkum því hún er í mikilli þörf fyrir það. Ég setti inn myndir af nýja húsinu í Skärpäng á myndasíðuna ásamt nokkrum af Rúnu Lóu og Röggu. Við fórum nebblega í heimsókn á sunnudaginn og leigjendurnir voru svo sæt að sletta í eina rjómaköku með jarðarberjum úr garðinum.. Svo þegar við komum í haust vera eplin sennilega orðin þroskuð og fín :)

8. júní 2004

að flytja til täby


Täby er bær rétt fyrir utan Stokkhólm eiginlega svona Garðabær eða Mosfellsbær þeirra helv. nullotterna en það eru stokkhólmsbúar kallaðir af hinum. Öll númer í Stokkhólmi byrja nebblega á 08.. þetta sagði Finnur mágur mér en hann býr í Skövde með sinni heittelskuðu en þau eru að flytja til Cph því er nú helv. ver. Þegaar við við Ragga vorum að ganga frá ráðningunni í Sverige í síðustu viku skoðuðum við líka húsnæði. 6 stk. og leist okkur strax vel á það fyrsta og reyndar eitt annað þau eru bæði í Täby annað í Skarpäng og hitt í Gribbylund. Þetta eru algjör fantasíu heimili eins og klippt út úr skáldsögu e. Astrid Lindgren. En í fyrra húsinu sem við erum spenntari fyrir er stór garður, og dúkkúhús fyrir Rúnu Lóu og og jarðaber handa frúnni svo ekki sé talað um fimm mínútur í næstu baðströnd.