Sýnir færslur með efnisorðinu Racer. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Racer. Sýna allar færslur

14. apríl 2009

Svo 2007


Annar í páskum og þá var fákurinn viðraður. Fyrsta skipti í vetur á racer. Farnir voru 37km úr Fossvogi beina leið uppí Elliðárdal framhjá nýju hverfunum í Kópavogi. Þaðan í Heiðmörk og inní Hafnafjörð við gamla kirkjugarðinn. Rennt í gegnum norðurbæinn svo í Garðabæinn og í framhaldinu farið um Kársnesið. Mjög skemmtileg og greiðfær leið.