13. júní 2010

Að pakka í töskur.

Ég er búinn að tjalda í stofunni. Búinn að fara yfir súpertékklistann 500 sinnum. Ætla að nota daginn í dag og öfundast út í þá sem eru í Bláa Lóns Þrautinni, en nýta krafta mína í annað. Pakka og fara yfir allt sem vantar í ferðina góðu.

Dæmigert að það þurfi líka að vera alveg brjálað að gera í vinnunni og Frú Ragnheiður úti á landi með prjónakerlingar.

Kominn með lista yfir það sem þarf að redda á morgun. Þar á meðal er auka Ortlieb taska ofaná bögglaberann, þar sem ég mun geyma tjaldið og svefnpokann. Sækja aukalyf, fixa sætispóstinn, kaupa aukaslöngur, fá evrópska sjúkratryggingakortið og auðvitað vinna helling líka. Hef svo þriðjudaginn til þess að fixa það sem ekki næst á morgun.

Nú er verið að þvo síðustu vélar svo hægt sé að pakka síðustu hlutunum niður.


24. ágúst 2009

1. skóladagurinn



Rúna byrjaði í nýjum skóla í dag. Kennarinn tók á móti okkur í morgun og bauð Rúnu velkomna. Rúna verður í tæplega 50 manna bekkjarhóp en 6 ára bekkurinn er allur hafður saman en þrír kennarar sinna hópnum. Svo skoðuðum við Neðstaland sem er frístundaheimilið í Fossvoginum. Rúnu leist mjög vel á þetta allt saman. Hún ætlar svo að fara í ballett aftur í vetur og svo langar hana að læra á hljóðfæri.

15. ágúst 2009

Eitthvað lost þessi.


Í eða Á Stykkishólmi er þessa verslun að finna. Hef ekki farið inní hana en fannst nafnið fyndið. Þau eru svo auðvitað með heimasíðu