26. nóvember 2004
Spurning um að vera duglegri !
HÆ, já ég er lifandi ... Við höfum það alveg glimrandi, hérna í Sverige.. Núna er frost og funi, og hitastigið hefur alveg farið niður í 15° en mér er sagt að það sé ekki neitt. Ég hef ekki skrifað staf síðan ég kom hingað út, en það er nú í lagi... maður hefur bara verið að koma sér fyrir og svona reyna að læra málið og sækja um milljón vinnur.. Atvinnuleytin gengur la la.. Svíar eru ekkert að stressa sig á því að senda svör strax, og svo er umsóknarfresturinn alveg gígantískt langur hérna.. Hingað kem ég með E-303 pappír uppá vasann sem þýðir það að ég má leita mér að vinnu í öðru evrópulandi en Íslandi.. Ég ákveð að fara til Se. en svíar.. rólyndisfólk.. 3 mánuðir.. ég er fyrst núna að byrja að fá einhver svör við þessum þúsundum umsókna sem ég hef sent inn.. og að sjálfsögðu.. hljoma þau flest á þá vegu að einhver annar með meiri reynslu og menntun hafi verið ráðinn :( en núna hef ég að minnsta kosti fengið boð um viðtal sem ég fer í eftir rúma viku :) það eru ný tíðindi.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)