27. janúar 2007

Nýgift



Rúna Lóa er mjög ánægð á nýja leikskólanum. Þetta er 4 leikskólinn sem hún er á eftir að við fluttum hingað til Svíþjóðar. þannig að hún er vön stífri og óhagganlegri 2 vikna aðlögun þeirra Svía. Á leikskólanum eru fleiri strákar en stelpur. Hún er búin að hitta vinkonu sem heitir Gerda og leika þær sér soldið inni á Dockis en það er herbergi þar sem finna má milljón dúkkur og dúkkuföt. Gerda er búin að vera veik í vikunni svo hún tók upp á það ráð að gifta sig honum Elliott í hvítum prinsessukjól með slör og alles. Í næstu viku er svo planað að gifta Gerdu. Sú ákvörðun er reyndar tekin að henni forspurðri. Upp er komið lítið vandamál. Á mánudaginn kemur heitmaður hennar Rúnu Lóu frá Íslandi og þá er næsta víst að hjónaband þetta sé í uppnámi.

24. janúar 2007

Vetrarríki


Stokkhólmur í morgun 10°C í mínus.. brrr brrr. Á leið að sækja Rúnu Lóu gekk ég fram hjá Vinterviken sem er ísilögð og ægifögur. Var með símann og smellti af þessari.

21. janúar 2007

Snjókallar


Það er loksins byrjað að snjóa hér í Svíþjóð. Sú stutta vildi að sjálfsögðu fara út og gera snjókall, lítinn snjókall. Fyrst gerðum við einn lítinn sem var fljótlega gerður að mömmu. Þar á eftir kom pabbinn og síðan var Rúna Lóa búin til. Þessir snjókallar sjást allir á myndinni ásamt öðrum stærri úr öðrum fjölskyldum. Auðvitað voru líka gerðir fleiri snjókallar. Þarna var Hlynur og Sindri og að lokum gerði Rúna ein og óstudd BabyBorn snjókall. Öll snjófjölskyldan sést á myndasíðunni
Á morgun á að halda áfram að bæta við fjölskylduna. Ragnar Gaukur er næst á dagskrá.

9. janúar 2007

Flutningar


Takk, takk takk.. Hjartans þakkir til ykkar allra sem hjálpuðu okkur að flytja á sunnudaginn. Þetta hefur verið einn sprettur og enn er nokkuð eftir. Við komum ekki til með að afhenda húsið fyrr en 1. febrúar þannig að við höfum ágætan tíma til þess að þrífa og taka það síðasta.
Dosti, Freyr, Magga, Henrik og Guðjón þið eruð sannkallaðar hetjur, þúsund þakkir fyrir okkur.

4. janúar 2007

Guðrún Lóa


Höfum verið að myndast við að pakka í dag. Flutingar á sunnudaginn og við Rúna ætlum að hitta húsvörðinn í húsinu á morgun. Hlaupabólan eitthvað á undanhaldi. Ragga kemur seint annað kvöld og það er hér ein sem saknar hennar mikið. Í nótt þegar hún vaknaði kom hún uppí og skreið í mömmuhólf eins og hún kallar það. Hún brást við með mikilli ofsagleði, sem varði ofurstutt þegar hún fattaði að það var ekki mamma sín sem var í réttu hólfi heldur karlfauskurinn pabbi hennar. Þannig að mikil sorg tók við og hún er búinn að segja með reglulegu millibili að hún sakni mömmu sinnar og Haraldar vinar síns sem er enn á Íslandi.

2. janúar 2007

Sindri

Þegar fjölskyldan var hér var tekið mikið af myndum, og munu þær birtast hér þegar tími gefst til. Sumum myndunum ætla ég bara að dæla beint inná flickr, sumar reyni ég að vinna eitthvað betur og gera skemmtilegar en svo er líka fullt af myndum sem ég fæ ekki leyfi til að sýna á obinberum vettvangi. Skrítið það.

Hlaupabólustelpa



Gleðilegt nýtt ár öllsömul. Rúna Lóa byrjaði árið með því að fá hlaupabólu sem ég af einhverjum undarlegum ástæðum rugla alltaf saman við hettusótt. Fólk tekur létt andköf þegar ég segi frá því að hún liggi heima veik. Hress er hún og hjálpar pabba að pakka. Við ætlum nefnilega að flytja á sunnudaginn.

1. janúar 2007

Skatan frh.




Skatan smakkaðist mjög vel þó svo hún væri svo sem ekki sú kæstasta sem ég hef smakkað. Eins og sjá má á myndunum Hlyni og Sindra ekkert svo allt of vel á matinn og hvað þá grænleitu hnoðmörina sem fylgdi. Ég tek þó ofan af fyrir þessum á stundum matgikkum því þeir fengu sér að smakka. Hvorugum þótti þetta þó gott en ég held þó að þeir hafi þótt þetta betra á bragðið ein lyktin hafi gefið til kynna.

Á Þollák



Ok, það kemur ekki allt í réttri röð ;) en það verður bara að hafa það. Þorláksmessa var hefðbundin verslunarferð í Moll. Síðan þegar heim var komið var soðin skata. Reyndar ekki alveg hefðbundin, því ég er vanur að fara með vinum og éta skötuna með vinum mínum hjá Úlfari í 3 frökkum. En engin skata í fyrra þannig að það við tókum á það ráð að láta færa okkur hana með fólksflutningunum miklu.



Skatan var soðin við opin glugga og með tusku vætta uppúr ediki. Ragga minnti mig vinsamlega á að það væri enn lykt af leðurjakkanum síðan í síðustu skötuveislu (2004)



Hér eru svo herlegheitin.

Loksins



Það var mikið líf og fjör hérna þegar öll fjölskyldan var saman komin hérna í svefnstaðnum Åkersberga. Strákarnir voru yndislegir eins og alltaf og Rúna Lóa og Ragnar Gaukur náðu einstaklega vel saman.



Að kvöldi dags, hér kvöldar um fimmleytið btw. Þá er tími að taka sér bók í hönd og eins og sjá má þykir frændsystkinunum það misspennandi.


Jólin 2006



Jólin byrjuðu hér í Svíþjóð þegar strákarnir okkar komu til okkar þann 16. desember. Á þorláksmessu elduðum við svo skötu.Húsbóndinn staðhæfði að lyktin mundi umsvifalaust hverfa þegar við syðum hangiketið þá varð það ekki raunin. Á aðfangadag var allt tekið ákaflega rólega og við byrjuðum að borða undir íslenskum messusöng og fengum hamborgarhrygg að heiman og grænar Ora og alles. Meira að segja MaltogAppelsín innflutt með Lindu og Ömmu Lóu. Allt ákaflega ljúffengt. Pakkarnir voru svo teknir upp og allir voru ákaflega ánægðir og við þökkum að sjálfsögðu fyrir okkur.



Ragnar Gaukur og Rúna Lóa í jólafötunum sínum fyrir framan allan pakkafjöldann.



Seinna um kvöldið með eftirrétt í Prinsessuklæðnaði eins og 3ja ára stúlkum sæmir.

Á Jóladag að syngja á sænsku


Á Jóladag komu til okkar í heimsókn Dosti, Anna Sóely, Dagur og Jana sem sést á myndinni. Við borðuðum hangiket og með því.