Annar í páskum og þá var fákurinn viðraður. Fyrsta skipti í vetur á racer. Farnir voru 37km úr Fossvogi beina leið uppí Elliðárdal framhjá nýju hverfunum í Kópavogi. Þaðan í Heiðmörk og inní Hafnafjörð við gamla kirkjugarðinn. Rennt í gegnum norðurbæinn svo í Garðabæinn og í framhaldinu farið um Kársnesið. Mjög skemmtileg og greiðfær leið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli