15. desember 2006

Kommentakerfið,,

Kommentakerfið er í rúst. Ég var svo vitlaus að skipta yfir í Beta útgáfu af Blogger og þá fór kerfið í rúst. Nú gengur enganveginn að leggja inn komment. Þetta er þekkt vandamál sem þeir hjá Blogger þykjast hafa lagað í september síðastliðnum en hefur komið upp aftur í þessari viku skv. þessum gaurum. Ekki eins og kommentakerfið sé sérstaklega virkt hjá mér en Þessir 2-3 lesendur hafa þó lagt inn eitt komment hver ;)

14. desember 2006

Jólasveinninn og litla hjartað



Nú eru þrír dagar liðnir. Skórinn hefur verið settur út í glugga samviskusamlega og hafinn hefur verið húslestur á kvöldin, Jólin koma: kvæði handa börnum.

Höfundur eins og allir vita Jóhannes úr Kötlum. Litla hjartað bað okkur foreldrana að vera ekkert að hafa skóinn í sínu herbergi. Helst af öllu vill hún bara ekkert hafa skóinn. Tilhugsunin um að það séu einhverjir kallar að koma um miðja nótt og opna gluggann er henni ekkert að skapi. Það þýðir lítið að koma með mótbárur um að Jólasveinninn þurfi ekkert að opna gluggann. Nú eru byrjaðar pælingar um Grýlu og Leppalúða og svo kisuna sem étur krakka. Þjóðminjasafnið kynnir nú af kappi þessa gömlu sveina. Foreldrar sem vilja vera menningarlegir fara niður í safn og uppskera geðshræringu barnanna í staðinn. Eða eins og á þessu heimili Undirmigu og brostinn svefn.
efri myndin var tekin á Luciu des. 2005 þegar hún var ekki farin að hræðast Jólasveininn.
Ath! ef þið farið inná vef Þjóðminjasafnsins ekki gleyma að kíkja á Bjúgnakræki.

11. desember 2006

Lítil hetja



Sú litla fór á Astrid Lindgren sjúkrahúsið í morgun til þess að láta laga kviðslitið. Fyrst fékk hún plástra sem deyfa hendina þannig að betra er að setja upp nál á handarbakið. Ekkert múður. Hjúkrunarkonan reyndi að dreifa huga hennnar með límmiðum en henni þótti miklu meira spennandi að læra að setja upp nál. Hennar helsta áhugamál fyrir utan prinsessur eru nefnilega lækningar hvaða nafni sem þær nefnast. Þegar nálin var komin á sinn stað kom Dr. Svæfingatröllskessa Von Hoffmayer. Þá varð litla smá feimin enda urðu foreldrarnir hálf hræddir við dólgslætin í henni. Það vildi svo skemmtilega til að það var íslenskur læknir sem saumaði hana saman. Rúna svaf svo í rúma tvo-þrjá tíma eftir aðgerð og gekk svo út af spítalanum og heimtaði eitthvað að borða enda ekki búinn að fá vott né þurrt frá kvöldinu áður.

10. desember 2006

Þegar piparkökur bakast...


Eftir hjólatúrinn í dag buðum við nágrannanum yfir, honum Max. Þau voru afar hress og bökuðu kameldýr af miklum móð.

Idol-pinni


Ekkert kemst nálægt því að vera eins spennandi og prinsessur þessa stundina. Nú stitur mærin og horfir á Nóbelshátíðina og horfir á ALVÖRU prinsessur og drottningar. Segir ohh nú er ég glöð. Í gær var litla prinsessan að velta því fyrir sér hvað hún vildi í jólagjöf og sá þennan forláta mikrafónstand í einhverju leikfangablaðinu sem berst hingað. "Mamma pabbi mig langar í svona IDOL-pinna".
Annars er af þeirri litlu að frétta að hún er að fara í uppskurð á morgun vegna kviðslits. Þetta er mjög lítil aðgerð en það verður að svæfa hana og hún verður að fasta frá því á miðnætti. Hún er spennt fyrir þessu og BabyBorn verður henni til halds og traust því hún fer líka í samskonar uppskurð.
Sindri Snær, Hlynur, Amma Lóa og Ragnar Gaukur koma svo á laugardaginn og er mikil eftirvænting hér á bæ.

22. nóvember 2006

Í fótsporum föðursins


Þegar kallinn var úngur þá spilaði jaa ok það er kannski orðum aukið. En allavega þá lærði ég á trompet. Trompetinn fékk ég í fermingargjöf frá mömmu og pabba og þykir einstaklega vænt um gripinn. Áður hafði ég prófað að læra á básúnu en hana lærði ég á í Reykjavík. Við fluttum til Vestmannaeyja þegar ég var 13 ára og þar byrjaði ég að læra á trompetinn en þá þótti mér það eitthvað asnalegt sem er synd.

Litla veik.




Rúna Lóa átti að fara í uppskurð í dag en það varð að fresta honum vegna þess að Rúna er með grænan hor og gröft í auga. Þessi litli uppskurður er vegna kviðslits sem hún er búin að vera með í nokkurn tíma.
Vinnan hjá mér gengur sinn vanagang og ég verð sendur í skóla í janúar til þess að læra að handjárna fólk, fantabrögð og alls kyns skemmtilegheit eða þannig. Vona að þetta verði líka kennsla í viðtalsmeðferð. Fyrst verður byrjað á 3 vikna kúrs sem er kynning á því hvernig réttarkeðjan virkar. Því næst tekur við 8 vikna háskólakúrs sem ég slepp að öllum líkindum við, en þar skrifar fólk ritgerð og lærir að vinna í grúppu. Að lokum er 14 vikna kúrs en þar er farið nánar í hvernig maður á að vinna þarna og svo fer maður í alls kyns vettfangsferðir í td öryggisfangelsi, opin fangelsi og líka frivården en þar er fylgst með þeim sem eru á skilorði. Það finnst mér ákaflega spennandi að sjá hvernig virkar.

11. nóvember 2006

Garún og Djákninn



Um síðust helgi fórum við til Möggu og Henriks í Hrekkjavökupartý. Þessi mynd var ekki tekin við það tilefni.
Við hjónakornin brugðum okkur af bæ í vikunni og sáum hina bráðskemmtilegu grínmynd Borat. Slagsmálaatriðið í myndinni er enn að koma upp í huga minn og hrella mig. Myndin var fyndnari en ég þorði að vona.

10. nóvember 2006

Alphaville nostalgía

Turkish Big In Japan


Smá nostalgía varðandi þetta lag. Ekki er nú samt öll vitleysan eins. Þetta eru fullorðnir menn sýnist mér.. eða kannski er ég bara orðinn gamall og húmorslaus.

1. nóvember 2006

Fyrir Björn og Dosta.

Ekki nýr sannleikur, en er það ekki skrítið þegar maður gúgglar orðið "failure" og ýtir á vogun vinnur vogun tapar. Eða eins og það heitir á sænsku jag har tur. Prófið sjálf - Gúggl
Svo er það soldið íronískt að þegar maður gúgglar á sama hátt orðið "search" fær maður upp Live search hjá Microsoft.
Annars er það að frétta að nú í nótt byrjaði að snjóa og því verðum við Dosti að spýta í lófana og taka fram gönguskíðin. Þann 27. febrúar verður haldið hið árlega Vasalopp og við erum skráðir til þátttöku í hálfa göngu alls 45km. Hvorugur okkar hefur gengið á svona skíðum svo nokkru nemi.
Mæli með nýrri bók sem ég er að lesa um þessar mundir. Hún heitir Snabba Cash og er eftir lögfræðingin Jens Lapidus. Þetta er hans fyrsta bók og segir frá 3 gaurum í undirheimum Stokkhólms. Einn þeirra er fangi í Österåker fangelsinu og tekst að flýja þaðan. Síðan er hann á flótta hér í nágrenni okkar. Askúl.

4. júlí 2006

Pikknikk í Vaxholm


Um síðustu helgi fórum við til Vaxholm ásamt fríðu föruneyti. Silla, Kormákur og Hekla eru hér í heimsókn og svo auðvitað Amma Lóa og Sindri Snær. Þannig að við vorum 9 stk. sem fórum í steikjandi hita með strætó niður til vaxholm. Ferð sem tekur venjulega ekki mikið meira en 20 mín í venjulegum heimilisbíl tók okkur um 2 tíma með strætó og við þurftum að skipta 2xinnum um vagn. Gaman það. Það var margt um manninn í Vaxholm og bærinn alveg meiriháttar fallegur. Við tókum ferju yfir í litla eyju sem er eiginlega virki á vegum sænska hersins. Á eyjunni fengum við okkur heimasmurt nesti og nutum veðurblíðunnar sem hefur verið alveg einstök síðan Silla og co komu.

Hlynur

Sindri Snær

Kastalinn í Vaxholm


Þarna sátum við fyrir framan virkið/kastalann/fangelsið og fengum okkur nesti. Fyrir miðri mynd eru fangaklefar og þar fannst okkur við hæfi að fá okkur nesti.

3. júní 2006

Garðyrkja


Nú er sumarið loksins komið með öllum þeim mýbitum sem því fylgir. Hitinn fór yfir 20° í dag og mæðgurnar umpottuðu nokkrum blómum. Hlynur var hjálparsveinn í Stokkhólmsmaraþoninu í dag. Hann og Halldór vinur hans sem býr í Täby sáu um geymslu muna fyrir um 200 þátttakendur hlaupsins, en þeir voru í heild rúmlega 17þús. sem mættu til leiks í hlaupið. Ragga kom frá Barcelona í gær og það var mikil gleði hér á bæ þegar hún kom.

28. maí 2006

Ef þú kemur nær þá...


Ég slæ þig í andlitið ef þú tekur eina mynd í viðbót. Fórum í Hagaparken eins og ég var búinn að koma að hér áður. Við tókum nokkrar myndir og þær getið þið nálgast hér til hliðar í Flicr albúminu. Ragga er á leið til Barcelona á morgun og kemur heim uppfull af flamengó og Sangría, Ólé..

Blómabarn


Fórum í smá göngutúr í dag. Hlyni fannst þetta nú eitthvað asnalegt og nennti ekki að ganga lengi með okkur. Rúna skemmti sér hins vegar mjög vel og fór á leikvöllinn og rólaði og renndi sér í rennibrautinni. Fjölskyldan fór í Hagaparken í gær og þar hittum við fullt af Íslendingum. Íslendingafélagið er í mikilli sókn og stóð fyrir skemmtilegum degi þar sem farið var í brennó og einhversskonar fótbolti leikinn. Betri mæting var en ég gat ímyndað mér miðað við það að það var rigningarlegt og samt ekkert of kalt. Hendi kannski inn myndum frá Hagaparken fljótlega ;)

11. maí 2006

Púsl og pylsur



Stundum getur verið erfitt að koma öllu heim og saman. Ragga ferðast mikið og ég vinn óreglulegan vinnutíma. Hlynur er duglegur að sækja Rúnu Lóu á leikskólann. Hlynur fór í fermingarbúðir um daginn og Ragga hefur verið mikið á flakki í maí. Þá kemur sér vel að eiga góða vini. Dosti og Anna Sóley skutluðu Hlyni á Arlanda og Björn og Lóa sóttu Rúnu í leikskólann daginn eftir. Við erum þeim innilega þakklát fyrir. Á sunnudaginn hittumst við síðan öll eftir mikið púsluspil og átum saman pylsur og frábæran kjúkling sem Lóa eldaði. Lystakokkur.

í nágrenninu.



Þriggja gröfu vegur. Við enda hans eru gamlar námur sem var lokað fyrir löngu síðan. Þar er að finna mjög fallega steina og ótrúlega mikið drasl. Gamlir skúrar, eldgamlir lestarteinar og svo nýrra dót eins og heimilistæki sem hafa lokið sinni þjónustu og svo þessi skemmtilegi Volvo sem er enn á númerum. Gaman fyrir mann eins og mig sem fannst gaman að fara á gömlu haugana og skoða drasl og rusl.

23. apríl 2006

páskakellingar

Påskkärringar eða páskakellingar eru sniðugt fyrirbæri. Það er smá Hallóvín blær á þessu. Þær eyða margar ómældum tíma í að undirbúa sig með því að búa til páskakort sem þær dreifa í hús. Þær koma mjög sætar eins og þið sjáið og banka upp á, bjóða manni uppá kortið og syngja lítið lag og fá að launum smá gotterí. Það komu hér tveir hópar af páskakellingum og í fyrsta skipti vorum við algerlega óundirbúin eða.. reyndar var Maggasin í Uppsölum búin að minna okkur á þetta en það var gleymt um leið. Þannig að það voru soldið vonsviknar stúlkur sem fóru héðan burt en við fengum engu að síður páskakort. Síðari hópurinn fékk svo eitthvað fyrir sinn snúð. Litla páskakellingin tók svo ekki annað í mál en að fara uppstríluð í boð til Uppsala á föstudaginn langa. Þið kunnið að velta því fyrir ykkur hvort það séu engir páskakallar.. jú það er víst.. veit ekki alveg hvað þeir heita.. kannski påskgubbar, en ég á eftir að sjá svoleiðisfyrirbæri. Upplifun mín á þessu er einhversskonar blanda af Grýlu og hallóvín.. nema með vinalegra yfirbragði.

yfirfærsla

Þrátt fyrir skemmtilegan tíma með pabba sínum og bræðrum þá er hún farin að hlakka til að fara í leikskólann aftur. Í gær vorum við Rúna að horfa á sjónvarpið ( sem við gerum að öllu jöfnu alls ekki, eða þannig) Hún benti á þáttarstjórnandann sem stýrði einhversskonar spurningarleik og sagði "hvað er hann með hér" og benti svo á kinnina á sér. Þáttarstjórnandinn var með míkrafón eins og fastan uppvið vangann eins og Whitney Houston var vön að hafa þegar hún var og hét. Mér finnst þetta mjög magnað hjá ekki 3ja ára stelpu að yfirfæra svona frá kallinum á sjálfa sig.

Páskarnir búnir og Sindri farinn heim


Þá eru páskarnir búnir. Súkkulaðiát huggulegheit og skemmtun. Sindri fór heim í gær og Hlynur kom í fyrradag, þá fórum við í Heron City sem er einhversskonar Mall þar sem er að finna flest annað en fataverslanir. Við brugðum okkur í keilu en þarna er einnig hægt að fara í bíó. Við Sindri gerðum það nokkrum dögum fyrr og sáum Narníu sem er frábær mynd. Sindri kláraði svo næstum bókina um Nornina, ljónið og klæðaskápinn á mettíma áður en hann fór.

Pisskiss á steini


Kátir sveinar Hlynur, Kristinn og Arnar pissa uppi á steini í garðinum hennar Eyrúnar í páskaveislu suðurdeildar Íslendingafélagsins í Stokkhólmi. (mynd frekar léleg þar sem hún er tekin út um glugga, en mómentið ágætt)

14. apríl 2006

Sindri loksins kominn.

Það er eins og hann sé að hugsa á þessari mynd hvort henni sé aldrei þrifið í framan þessari dúllu. En það vill nú svo til að það eru til fáar myndir af henni þar sem hún er alveg laus við matarleifar, hor eða annan ósóma.
Sindri er sem sagt hér. Þvílíkir fagnaðarfundir. Í gær gerðum við mest lítið fórum í göngutúr hér í nágrenninu og horfðum á vorið vakna, meðan Róa var upptekin við að moka og bjóða í kaffi á leikvellinum. Daginn þar á undan fórum við svo í langan skemmtilega bæjarferð gengum um miðbæjinn og fórum í Humlegården sem er ákaflega skemmtilegur staður fyrir börn. Í dag stendur fyrir dyrum að bruna til Uppsala og éta mat, væntanlega bland af íslenskum og sænskum páskum. Þar hittir Sindri skólafélaga sinn úr Melaskóla hann Tómas frænda Röggu. Gaman það ;D

Kisurnar í gula húsinu

Í gærmorgun vaknaði litla skottan og talaði bara um kisurnar í gula húsinu. Hún var viss um að þær væru svangar. Sótti því sínar kisur sem er ljón og síberískur sleðahundur og gaf þeim að borða þar sem Pompe hundurinn hans Tómasar frænda hennar fær sinn mat. Auðvitað fékk hún sér svolítið í leiðinnni.

21. febrúar 2006

áskorun

jamm og jæja.. áskorun..



4 störf sem ég hef unnið um ævina
  1. Mín fyrsta vinna.. handlangari hjá afa. Afi byggði hús Ásgeirs pylsusala í Breiðholtinu. Ég var mest í svona gutli, hreinsa spýtur og draga út nagla. Ég var svo glaður þegar ég fékk útborgað í fyrsta sinn að ég kyssti afa. Aldrei gert það við neinn vinnuveitanda síðar.
  2. Þvottahús Ríkisspítala. Bæði í hreinum og óhreinum þvotti.. Ekki ósvipað vinnunni á Kirkjusandi nema að þar var kaldara. Kirkjusandur var frystihús þar sem nú standa aðalstöðvar Íslandsbanka við Sæbraut. Þar var líka gaman að vinna.. þessar vinnur fékk ég í gegnum klíkuskap.. Góðir frændur sem hjálpuðu til.
  3. Byggingaverkamaður við húsaviðgerðir í Æsufellinu. Unnum myrkranna á milli fyrir meiriháttar gott kaup. Í stillönsum á áttundu hæð brutum við niður svalir. Með meitil í hönd á fimmtu hæð fékk ég svo flogakast og ráfaði inn til einhvers sem ég veit ekki hver er. Ekki árennileg sjón það.
  4. Gæsluvarðhaldsfangelsið Österåker. Þar sem erfiðara er að fást við samstarfsmennina en fangana sjálfa. Stundum eins og að vera kominn aftur í menntaskóla og stundum eins og að vera á geðdeild. Starfið er samt mjög gefandi og jafnframt mjög illa launað.
4 kvikmyndir sem ég get horft á aftur og aftur



Þegar ég fór að pæla í þessari spurningu komst ég að því að ég er ótrúlega Knapsu. Því þarna koma inn 2 söngva- og dansamyndir.
  1. Moulin Rouge.. Vissi varla hvað þessi mynd var um, og fór með semingi á hana í bíó. Titillag myndarinnar hef ég aldrei þolað. Restin af lögunum í myndinni eru hins vegar æðisleg. Ég missti næstum því þvag af geðshræringu og vissi varla hvort ég ætti að grenja eða hlæja... svo ég gerði hvorugt ... svona til þess að halda karlmennsku minni.
  2. Grís.. endalaust hægt að horfa á hana.. held ég þurfi ekki að útskýra það neitt nánar.
  3. Pulp Fiction. "Any of you fucking pricks move, and I'll execute every motherfucking last one of ya!" samræðurnar í myndinni eru bara snilld.
  4. Svo svona ein íslensk að lokum.. Með allt á hreinu.. Þótt Stuðmenn hafi aldrei verið neitt í uppáhaldi þá er þessi mynd toppen. Reyndar koma fast að hælum hennar, Dalalíf, Löggulíf og Íslenski draumurinn.

4 staðir sem ég hef búið á
  1. Æsufell. Frá rúmlega tveggja ára aldri til 26 ára aldurs tókst mér að búa í öllum stigagöngunum þremur. Yndislegur staður til þess að alast uppá.. allt fullt af krökkum, handbolti á göngunum og Steini Box brjálaður í þessa krakkagemlinga. Hóllinn með skíðaaðstöðuna og móinn neðan við húsið þar sem við söfnuðum í brennu.
  2. Smáragata 32 Vestmannaeyjum. Langir 10 mánuðir fyrir 13 ára gamlan ungling sem saknaði Breiðholtsins, Fellahellis og umfram allt vinnanna.
  3. Breiðvangur Borgarfirði Eystri. Frábær 2 ár, kynntist frábæru fólki sem kann allt. fór eiginlega í fyrsta skipti í sveit 29 ára gamall.. Vann við kennslu, dúntekju, í fiski og á bókasafninu. Einstök reynsla.
  4. Skärgårdsstad Svíþjóð. Mitt núverandi heimili. Búum hér rétt fyrir utan Stokkhólm næstum því í sveitasælu þar sem vetur stendur undir nafni og sumrin eru yndisleg.
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum
  1. Brasilía, stutt en árangursrík ferð.
  2. Bjarnarfjörður, frí en samt ekki frí. Námsferð á vegum félags náttúrufræðikennara.. alveg ótrúlega skemmtileg ferð sem ég fór með samkennara mínum frá Borgarfirði til Stranda.
  3. Prag.. hveitibrauðsdagar..
  4. Kempervennen, Hollandi.. Ekkert sérstakt veður. en þeim mun meira var maður í sundlauginni og í keilu.

4 síður sem ég skoða daglega
  1. www.mbl.is
  2. www.kvv.se
  3. www.dn.se
  4. www.ruv.is
4 bækur sem ég les oft



Skrítin spurning, ég legg ekki í vana minn að lesa bækur oft. Þær bækur sem ég hef lesið hvað oftast eru barnabækur..
  1. Bróðir minn Ljónshjarta
  2. Litla skrímslið sem sagði nei
  3. Litli prinsinn
  4. Tumi fer til læknis

4 staðir sem ég vildi vera á núna
  1. Á íslandi með Sindra mínum
  2. Á skíðum í Åre eða Sälen, með Sindra og restinni af fjölsk.
  3. Hawaii, með Sindra og restinni af fjölsk.
  4. Hvar sem er bara ég og Ragga.
4 sem ég skora á að gera þetta
  1. Ragga sæta
  2. Linda systir, já þú verður bara að byrja blogga ;)
  3. Sóley Valdimars
  4. Hinrik frændi


Svona STÓR

glæpir


Veit reyndar ekki hvort ég eigi að gerast glæpamaður

eða helga mig glæpum á annan hátt.. Listir.. nneee

En ég get skrifað undir að stjórnmál er ekkert fyrir mig.

Hér koma svo niðurstöðurnar:


You scored as Art. You could be an artist or an art critic.



Crime


59%

Art


59%

Medical


54%

Fame


54%

Athlete


46%

Service


46%

Stay at Home


46%

Food


46%

Factory


46%

Office


38%

Mechcanics


38%

Politics


9%



What job should you get?
created with QuizFarm.com

20. febrúar 2006

stjórnmálaskoðanir

You scored as Anarchism. <'Imunimaginative's Deviantart Page'>

Anarchism

75%

Democrat

58%

Socialist

58%

Green

50%

Communism

42%

Nazi

25%

Fascism

25%

Republican

0%

What Political Party Do Your Beliefs Put You In?
created with QuizFarm.com