
Það var svo merkilegt á þessum tónleikum að sjá öll þessi andlit sem maður hefur ekki séð í fjölda ára en kannast við en þekkir ekki neitt... Það er á þessum stundum sem maður áttar sig á því að Ísland er bara pínulítið sker. Við komum akkurat á rétta tímanum á tónleikana Ghostigital var að spila síðasta lagið sitt og ég hefði ekki viljað koma mikið fyrr, meira segja hefði verið betra að koma þegar byrjað var að klappa fyrir þessum skemmtilegu róturum sem segja EINN, TVEIR af svo mikilli kunnáttu í míkrafóninn að maður roðnar og fær gæsahúð í einu. Pixies tóku þetta fremur rólega framan af en keyrðu svo allt prógrammið í botn og það tók svona rúman klukkutíma og gæsahúðin hélt áfram að hríslast niður bakið þegar lögunum fjölgaði. Eftir tónleikana var andrúmsloftið eins og maður ætti að fara í eftirápartý en það var enginn sem bauð - skrítið ..