Rúna Lóa tók þátt í sínu fyrsta fótboltamóti í morgun. Draumaliðsmót Pepsí er haldið ár hvert af Íþróttfélagi Þróttar og spilaði 8. flokkur á Valbjarnarvelli. Stelpurnar voru hörkuduglegar og oftast nær hlupu þær í átt að réttu marki. Rúna var mjög ánægð með þetta og fékk að spila úti og í marki.