21. apríl 2005

Túlípanar


Var að bæta inn nýju myndaalbúmi. Í þessari fyrstu tilraunasyrpu getur að líta myndir sem við hjónin tókum um síðustu helgi. Við gistum í Uppsölum í góðu yfirlæti hjá Möggu og Henrik. Á sunnudag keyrðum við síðan suður í Huddinge í kaffi og kruðerí hjá Guðrúnu þar sem Nassinn gleymdist, en hann hefur nú verið endurheimtur. Myndaalbúmið er að finna hér og hægra megin á síðunni..

20. apríl 2005

att trivas


Hur trivs du? spurning sem maður fær oft hér í Svíþjóð sem þýðir eiginlega hvernig þrifst þú? í nýja húsinu, í landinu, í vinnunni, skólanum og svo framvegis.. setti þessa mynd sem dæmi um að Rúna Lóa trivs väldigt bra här i Sverige.

Lóa og Lamadýrin


Dýrin voru frekar stygg og Rúnu Lóu tókst ekki að gefa þeim hrökkbrauð eins og til stóð en það gefst kannski annað tækifæri. Annars var hún bara mjög huguð innan um þessi stóru dýr í þessu geysifallega umhverfi. Tómas þessi fyrir neðan í rauða vestinu, hinn er frændi hans, sem ég veit ekki hvað heitir. Örugglega Ludde eða Karl-Erik eða eitthvað álíka sænskt :) en ekki hvað..

Lamadýr i öppna landskap


Fórum út í sveit þar sem Henrik maðurinn hennar Möggusin er alinn upp. Ákaflega fallegur staður sem á sér mjög langa sögu. þarna áttu var mikilvægur áningarstaður á leið með vörur til stærri vikingabyggðar tam Birka. Þarna eru fornminjar frá þessum tíma og svo rúnasteinar sem eru svo að segja við hvern hól hér í Svíþjóð. Á bænum er aðallega stunduð nautgriparækt með öllu tilheyrandi þe framleidd mjólk, nautakjöt og rosalegir delikatess ostar sem hafa fengið mikla viðurkenningu. Ostarnir heita Focksta og eru frá Mama Mu:s delikatess. Það sem var hvað merkilegast var að sjá lamadýrin 3 á beit í haganum. Þau eru í pössun þarna á bænum og eru því ekki hugsuð sem landbúnaðarafurðir en af því sem mér skilst þá eru þessi dýr viðföng í einhverri medisínskri tilraun, áhugavert það.

13. apríl 2005

Sundgarpar


Einn daginn vaknaði sú stutta og sá sundbolinn sem við keyptum á Íslandi og sagði ' sund, sund, sund ' og linnti ekki látunum uns við létum undan og fórum í sund. Skruppum niður til Södertälje þar sem Sydpoolen er, en þar er mikið ævintýraland og ískaldar laugar og rándýrt inn - já og takmarkaður tími við 3 klukkustundir.. En þetta var frábær sundferð engu að síður þó ég hafi varla nennt til að byrja með. Rúna skildi hugrekkið eftir heima að þessu sinni og við eyddum mestum tíma í eina heita pottinum á svæðinu. Á 10 mínútna fresti voru allir reknir uppúr pottinum í 4 mínútur og 45 sekúndur til þess að hreinsa pottinn. Mjög effektift gegn drolli.

7. apríl 2005

6. apríl 2005

Hægur andvari


Frekar rólegt að gera hjá okkur hér í Svíþjóð um þessar mundir. Leikskólafrýrnar eru að krúttast yfir sig á Rúnu Lóu þar sem hún situr venjulega ein og syngur og trallar með sjálfri sér. Fengum í dag boð um að vera viðstödd 50 ára afmæli Nóbelsverðlaunanna, þeas 50 ár eru síðan Halldór Laxness hlaut þessi verðlaun og haldið verður uppá það hér í Stokkhólmi þann 23. apríl í sænsku akademíunni. Við erum að íhuga hvort við eigum að skella okkur.

5. apríl 2005

Stuð, stuð, stuð..


Ég er í svaka stuði..

Borða á pallinum


AAAaahhh oppnna svo.. Auðvitað eru allir með þegar borðað er á pallinum í fyrsta skiptið í sumar (eða ætti ég að segja vor) Baby Born og Nassi fá að borða líka.

Dæmigert veðurblaður


Þá erum við í Sverige aftur eftir geðbiðala Íslandstörn. Rúna Lóa varð ákaflega ánægð að komast heim í húsið sitt og hefur verið úti í garði síðan við komum heim. Þegar við komum til baka bjuggumst við við að vorið væri komið og allur snjór farinn en það var öðru nær. Garðurinn var fullur af snjó en þokkalega heitt í veðri miðjan daginn. Á sunnudaginn síðasta borðuðum við úti á palli og veðrið fór 17° og en það er enn soldið kalt í skugganum. Jói Páll gisti hjá okkur frá fimmtudegi til mánudags en hann var í æfingabúðum í Aikido hjá móðurfélagi sínu hér í Stokkhólmi sem heitir http://www.iyasaka.se/ Seinna skruppum við Jói svo á krá sem heitir Vasa Café og bar, eftir mjög góðan göngutúr um mér liggur við að segja allan Stokkhólm. Svo fórum við heim og settum í þvottavél og þurrkara.. ákaflega týpískt..