20. nóvember 2007

Balleríni



Rúna Lóa er eins og flestir vita gift í Svíþjóð. Eiginmaður hennar heitir Elmer og var með henni á Matrosen. Þetta er myndarpiltur og gætum við tengdaforeldrarnir ekki verið ánægðari með mannsefnið. Þau hafa svipuð áhugamál og allt sem skiptir máli er annað hvort bleikt eða blúnda. Hún ætlar annað hvort að verða Prinsessa þegar hún verður stór eða Ballerína. Hann ætlar auðvitað líka að verða Balleríni þar sem hann er karlmaður.



Á nýja leikskólanum hennar Rúnu Lóu er mjög skemmtilegur siður í gangi. Bangsinn Birgitta fer heim með krökkunum um helgar. Um síðustu helgi var komið að Rúnu Lóu. Hún var búin að vera spennt alla vikuna að fá hana heim. Fyrst fór Birgitta með Rúna Lóa með okkur í Garðabæinn þar fjölskyldan hennar Röggu hittist eftir kistulagningu Ömmu Röddu. Um nóttina fékk svo Birgitta að sofa í rúminu hennar Rúnu Lóu. Laugardagsmorguninn fórum við svo öll í ballett og fékk Birgitta að fylgjast með enda klædd í ballettkjól. Eftir balletttímann fór hún til Ömmu Ernu og Afa Eiríks. Þar varð hún náttúrulega nauðsvöng að venju. Eftir heimsóknina á Vífilsgötunni var haldið til Ömmu Lóu, Lindu og Ragnars Gauks til þess að sofa yfir eins og hún kallar það, enda hefur hún aldrei gist yfir nótt á Íslandi. Allt þetta vegna þess að mamma og pabbi þyrftu að fara á útgáfupartý með Páli Óskari, eins og það væri einhver kvöð.. Það var svvvooo gaman. Um hádegisbilið á sunndeginum fórum við svo aftur á Vífilsgötuna í boð og voru þar saman komin stjúpsystkini Röggu ásamt fylgifiskum. Þar varð Rúnsí eftir og fór með Emblu dóttur Högna í bíó. Birgitta og Rúna áttu því viðburðarríka helgi saman og gaman verður að fá hana í heimsókn næst.

27. október 2007

Einhver breyting þó..


Nú er komið haust og kannski tími að setja eitthvað lítilræði hér inn. Skemmst er frá því að segja að flutningar til Íslands gengu ákaflega vel með hjálp nokkurra afbragðsgóðra flutningamanna hér heima og ytra, kærar þakkir.





Við fjölskyldan erum hægt og rólega að koma okkur fyrir og málið er kannski að bjóða í eitthvað gott matarboð svo endahnúturinn sé hnýttur. Veðrið hefur ekki tekið vel á móti okkur en þar á móti kemur að allt viðmót fólks hefur verið framúrskarandi. Ég var barasta búinn að gleyma hversu góða þjónustu er hægt að bjóða yfirleitt á Íslandi. Læt hér fylgja með nokkrar myndir af ég held eina rigningarlausa deginum síðan við fluttum. Myndirnar eru teknar á Öskjuhlíð. Einnig eru nokkrar aðrar á myndasíðunni.

14. maí 2007

Sviti, spandex og brennt gúmmí.


The Three Amigos.

Undirbúniningur fyrir Vätternrunduna stendur sem hæst. Um síðustu helgi tókum við Dosti þátt í einu fisléttu móti og urðum í 1-2 sæti. Komum jafndekkja yfir marklínuna hönd í hönd eins og í væminni kvikmynd, og grétum fögrum tárum þegar við settumst niður og borðuðum heimasmurt nestið sem CykelKlubben UNI i Uppsala bauð uppá. Við tókum þátt í styttri vegalengdinni og þegar við sáum nokkru seinna "kerlingarnar á frúarhjólunum" koma í mark fór allur glansinn af þessu. Nú um helgina settum við markið aðeins hærra og tókum við þátt í aðeins lengra móti ásamt Steina, hinum nýbakaða föður úr Vaxholm. Nú var leiðin 85km sem reyndust vera 90 skv. hjólatölvu Dosta sem er tengd CTU og í beinu sambandi við Jack Bauer. Undir lokin á túrnum fór Steina að leiðast þófið og tók á sprett en villtist og fór einhverja 5-10 km að auki. Ótrúlegt var að fylgjas með þessum gaurum sem komu svífandi fram úr okkur á 45-50 km hraða allir í takt, líkast í teiknimynd því flestir voru í eins spandexgöllum.
Það má sko segja að þessi keppni hafi tekið all rosalega á. Lærin, hálsinn, mjaðmirnar og bakið - Herregud. Í gær var ég algerlega uppgefinn og fór að sofa snemma og hef verið hálfur maður í dag. Stoltur af að hafa farið þetta og tilbúinn að fara 300 km um miðjan júní.

17. apríl 2007

Yndislegar??



Já það má nú segja.. inná milli geta þær verið yndislegar. Í þessari heimsókn fór mikið fyrir alls kyns skammarstrikum. Emil kemst ekki með tærnar þar sem þær hafa hælana í þessum efnum. Nokkur dæmi: Á leikskólanum afrekuðu þær að "týna" ca 30 nýniðursett blóm. Krotuðu á sameignina. Dreifa hreinum þvotti samviskusamlega um herbergið. "búa um" hjónarúmið og krassa á dýnuna. Ef til vill má týna eitthvað fleira til en myndin að neðan talar sínu máli

18. mars 2007

Gleðilegt sumar


Sumarið er komið hér í Svíþjóð. Fyrir 2 vikum voru öll vötn hér ísilögð en aðeins byrjað að hlýna svo fólk var unnvörpum að falla undir ísinn. Spyrjið bara Lóu hún veit allt um þetta. Nú eru starfsmenn borgarinnar að hreinsa göturnar eins og moðerbroðers þannig að nú er lag að hjóla um stræti og torg. Enda fórum við hjólandi niður í Slussen og pumpuðum í dekkin á Röggu hjóli og komum svo aðeins við í Tantolunden á leiðinni til baka. Frábær dagur.

Skemmtilegur arkitektúr


Hér í Gröndal búum við á grensunni við risastórt iðnaðarsvæði. Soldið eins og að búa niðrí Sundahöfn þar má sjá skemmtilega byggingarlist. Þetta á víst allt að rífa og byggja 1000 nýjar íbúðir, synd.

13. mars 2007

Sorrí Dosti

Ég er búinn að laga þetta, vona að þetta hafi ekki valdið þér neinu óbætanlegu andlegu tjóni.

4. mars 2007

Búkona


Með hnút í hnakkanum og í vestfirskri hyrnu sem mamma hennar prjónaði af mikilli snilli.

9. febrúar 2007

Af Öpum


Um daginn þegar ég og dóttir mín vorum ein heima þá vorum við að glápa eitthvað á sjónvarpið eins og gengur og gerist. Í imbanum var eitthvað kvikmyndaprógram og það var verið að fjalla um nýjustu myndina sem Forest Whitaker leikur í, Idi Amin. Rúna Lóa var ekkert sérstaklega að horfa en staðnæmdist þónokkra stund fyrir framan sjónvarpið og sagði síðan andaktug "nei sko apinn kann líka að tala" Verandi í Svíþjóð þar sem ekki má styggja einn einasta mann þá reyndi ég að útskýra þetta fyrir henni eftir fremsta megni.
Ekki varð laust við hún færi soldið hjá sér við þessi ummæli sín. Soldið ópólitískt rétt þar sem má ekki einu sinni minnast á kynþætti, því það þykir mismunun.
Rúna Lóa er sumsé nokkuð upptekin af öpum þessa dagana. Í vikunni fór hún svo með mömmu sinni út í apótek. Ekki veit ég við hverju hún hafði búist enda oft áður farið í apótekið. Hún var í góðu skapi og sönglaði fyrir munni sér "Apó, apó, apó ...tek.. ætli það séu apar í þessu Apóteki..

27. janúar 2007

Nýgift



Rúna Lóa er mjög ánægð á nýja leikskólanum. Þetta er 4 leikskólinn sem hún er á eftir að við fluttum hingað til Svíþjóðar. þannig að hún er vön stífri og óhagganlegri 2 vikna aðlögun þeirra Svía. Á leikskólanum eru fleiri strákar en stelpur. Hún er búin að hitta vinkonu sem heitir Gerda og leika þær sér soldið inni á Dockis en það er herbergi þar sem finna má milljón dúkkur og dúkkuföt. Gerda er búin að vera veik í vikunni svo hún tók upp á það ráð að gifta sig honum Elliott í hvítum prinsessukjól með slör og alles. Í næstu viku er svo planað að gifta Gerdu. Sú ákvörðun er reyndar tekin að henni forspurðri. Upp er komið lítið vandamál. Á mánudaginn kemur heitmaður hennar Rúnu Lóu frá Íslandi og þá er næsta víst að hjónaband þetta sé í uppnámi.

24. janúar 2007

Vetrarríki


Stokkhólmur í morgun 10°C í mínus.. brrr brrr. Á leið að sækja Rúnu Lóu gekk ég fram hjá Vinterviken sem er ísilögð og ægifögur. Var með símann og smellti af þessari.

21. janúar 2007

Snjókallar


Það er loksins byrjað að snjóa hér í Svíþjóð. Sú stutta vildi að sjálfsögðu fara út og gera snjókall, lítinn snjókall. Fyrst gerðum við einn lítinn sem var fljótlega gerður að mömmu. Þar á eftir kom pabbinn og síðan var Rúna Lóa búin til. Þessir snjókallar sjást allir á myndinni ásamt öðrum stærri úr öðrum fjölskyldum. Auðvitað voru líka gerðir fleiri snjókallar. Þarna var Hlynur og Sindri og að lokum gerði Rúna ein og óstudd BabyBorn snjókall. Öll snjófjölskyldan sést á myndasíðunni
Á morgun á að halda áfram að bæta við fjölskylduna. Ragnar Gaukur er næst á dagskrá.

9. janúar 2007

Flutningar


Takk, takk takk.. Hjartans þakkir til ykkar allra sem hjálpuðu okkur að flytja á sunnudaginn. Þetta hefur verið einn sprettur og enn er nokkuð eftir. Við komum ekki til með að afhenda húsið fyrr en 1. febrúar þannig að við höfum ágætan tíma til þess að þrífa og taka það síðasta.
Dosti, Freyr, Magga, Henrik og Guðjón þið eruð sannkallaðar hetjur, þúsund þakkir fyrir okkur.

4. janúar 2007

Guðrún Lóa


Höfum verið að myndast við að pakka í dag. Flutingar á sunnudaginn og við Rúna ætlum að hitta húsvörðinn í húsinu á morgun. Hlaupabólan eitthvað á undanhaldi. Ragga kemur seint annað kvöld og það er hér ein sem saknar hennar mikið. Í nótt þegar hún vaknaði kom hún uppí og skreið í mömmuhólf eins og hún kallar það. Hún brást við með mikilli ofsagleði, sem varði ofurstutt þegar hún fattaði að það var ekki mamma sín sem var í réttu hólfi heldur karlfauskurinn pabbi hennar. Þannig að mikil sorg tók við og hún er búinn að segja með reglulegu millibili að hún sakni mömmu sinnar og Haraldar vinar síns sem er enn á Íslandi.

2. janúar 2007

Sindri

Þegar fjölskyldan var hér var tekið mikið af myndum, og munu þær birtast hér þegar tími gefst til. Sumum myndunum ætla ég bara að dæla beint inná flickr, sumar reyni ég að vinna eitthvað betur og gera skemmtilegar en svo er líka fullt af myndum sem ég fæ ekki leyfi til að sýna á obinberum vettvangi. Skrítið það.

Hlaupabólustelpa



Gleðilegt nýtt ár öllsömul. Rúna Lóa byrjaði árið með því að fá hlaupabólu sem ég af einhverjum undarlegum ástæðum rugla alltaf saman við hettusótt. Fólk tekur létt andköf þegar ég segi frá því að hún liggi heima veik. Hress er hún og hjálpar pabba að pakka. Við ætlum nefnilega að flytja á sunnudaginn.

1. janúar 2007

Skatan frh.




Skatan smakkaðist mjög vel þó svo hún væri svo sem ekki sú kæstasta sem ég hef smakkað. Eins og sjá má á myndunum Hlyni og Sindra ekkert svo allt of vel á matinn og hvað þá grænleitu hnoðmörina sem fylgdi. Ég tek þó ofan af fyrir þessum á stundum matgikkum því þeir fengu sér að smakka. Hvorugum þótti þetta þó gott en ég held þó að þeir hafi þótt þetta betra á bragðið ein lyktin hafi gefið til kynna.

Á Þollák



Ok, það kemur ekki allt í réttri röð ;) en það verður bara að hafa það. Þorláksmessa var hefðbundin verslunarferð í Moll. Síðan þegar heim var komið var soðin skata. Reyndar ekki alveg hefðbundin, því ég er vanur að fara með vinum og éta skötuna með vinum mínum hjá Úlfari í 3 frökkum. En engin skata í fyrra þannig að það við tókum á það ráð að láta færa okkur hana með fólksflutningunum miklu.



Skatan var soðin við opin glugga og með tusku vætta uppúr ediki. Ragga minnti mig vinsamlega á að það væri enn lykt af leðurjakkanum síðan í síðustu skötuveislu (2004)



Hér eru svo herlegheitin.

Loksins



Það var mikið líf og fjör hérna þegar öll fjölskyldan var saman komin hérna í svefnstaðnum Åkersberga. Strákarnir voru yndislegir eins og alltaf og Rúna Lóa og Ragnar Gaukur náðu einstaklega vel saman.



Að kvöldi dags, hér kvöldar um fimmleytið btw. Þá er tími að taka sér bók í hönd og eins og sjá má þykir frændsystkinunum það misspennandi.


Jólin 2006



Jólin byrjuðu hér í Svíþjóð þegar strákarnir okkar komu til okkar þann 16. desember. Á þorláksmessu elduðum við svo skötu.Húsbóndinn staðhæfði að lyktin mundi umsvifalaust hverfa þegar við syðum hangiketið þá varð það ekki raunin. Á aðfangadag var allt tekið ákaflega rólega og við byrjuðum að borða undir íslenskum messusöng og fengum hamborgarhrygg að heiman og grænar Ora og alles. Meira að segja MaltogAppelsín innflutt með Lindu og Ömmu Lóu. Allt ákaflega ljúffengt. Pakkarnir voru svo teknir upp og allir voru ákaflega ánægðir og við þökkum að sjálfsögðu fyrir okkur.



Ragnar Gaukur og Rúna Lóa í jólafötunum sínum fyrir framan allan pakkafjöldann.



Seinna um kvöldið með eftirrétt í Prinsessuklæðnaði eins og 3ja ára stúlkum sæmir.

Á Jóladag að syngja á sænsku


Á Jóladag komu til okkar í heimsókn Dosti, Anna Sóely, Dagur og Jana sem sést á myndinni. Við borðuðum hangiket og með því.