23. apríl 2009
14. apríl 2009
Fossvogur í morgun
Jói sagði þegar við fluttum í Fossvoginn að leynt og ljóst stefndum við í að flytja í Breiðholtið aftur.. Ekki svo galin hugmynd segi ég... Veit að Ragga verður mér seint sammála. En Fossvogurinn er yndislegur meira að segja á dumbungsdegi eins og í dag.
Ferming Sindra Snæs
Sindri Snær fermist þann 26. apríl nk. Hann ákvað að láta ferma sig borgaralega og fer athöfnin fram í Háskólabíó kl. 1100. Boðið verður til veislu kl. 13.30 í sal á annarri hæð að Sóltúni 20.
Svo 2007
Annar í páskum og þá var fákurinn viðraður. Fyrsta skipti í vetur á racer. Farnir voru 37km úr Fossvogi beina leið uppí Elliðárdal framhjá nýju hverfunum í Kópavogi. Þaðan í Heiðmörk og inní Hafnafjörð við gamla kirkjugarðinn. Rennt í gegnum norðurbæinn svo í Garðabæinn og í framhaldinu farið um Kársnesið. Mjög skemmtileg og greiðfær leið.
Puttaprjón
Rúna Lóa byrjaði í dag að puttaprjóna. Hún fann sér tösku sem hún geymir garnið í og svo ætlar hún að taka mynd af afrakstrinum. Hún ætlar nefnilega að búa til puttaprjónabók. Sounds Familiar??
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
