Vinnusálfræði eða I/O ?
er út í háskóla í svaka gír.. Er að fara yfir próf í vinnusálfræði og lesa bók Muchinsky's.. Sumar spurningarnar á þessu gamla prófi eru afar svínslegar og það vekur hjá mér ugg þannig að maður verður nú aðeins að spýta í lófana eins og sagt er á íþróttamáli.. Annars fann ég ákaflega gagnlegan vef sem ég er að nota í próflestrinum núna og hjálpar hann manni með ýmsum hætti td. með interaktívum spurningum ofl. ótrúlega kúl..