Nýtt commentakerfi!
Merkilegt hvað maður getur verið að dunda við þegar maður á að vera að lesa undir próf :( Kommentakerfið er komið inn, enda var vaknað kl. 6 í morgun það verður víst að teljast framför því í gærmorgun var klukkan 05:09 Gvöð hjálpi mér... verðum að fara að fá okkur almennilegar gardínur þannig að Rúna Lóa vakni ekki alltaf við fyrstu sólargeislana.. en svo maður sé nú svolitlum Pollýönnuleik þá var yndislegt að vakna svona snemma og hlusta á Lóuna Þ.e. fuglinn... tísta hérna í holtinu.