22. febrúar 2005

múmíur og mont


Núna er ég að læra um Egyptaland og þar af leiðandi múmíur og svoleiðis vesen. EIns og almennilegum föður sæmir þá sagði ég dóttur minni 1 og hálfs árs að bókin sem ég er að lesa er um múmíur. Daginn eftir þegar hún sér bókina bendir hún á hana og segir múmí múmí.. voðalega spennt. Mér finnst ekki eðlilegt hvað hún er klár þessi skotta. Annars er myndin af Ramesses II sem varð ríkti í Egyptlandi 1279-1212 f.kr og var ákaflega merkilegur gaur. Hann ríkti í 67 ár varð níræður. Hann átti margar konur á og er talið að hann hafi átt yfir 100 börn.

8. febrúar 2005

Hrútspungar og sviðasulta


Þorrablót Íslendingafélagsins hér í Stokkhólmi er á næstu grösum. þe um næstu helgi og einhverjum vitringum datt í hug að hafa það soldið grand að þessu sinni. Og hvað haldið þið.. Veislustjóri kvöldsins verður enginn annar en hinn eini og sanni Ómar Ragnarsson jíhú og hljómsveitin KUSK leikur fyrir dansi.. Rétt upp hend sem hefur heyrt á hana minnst.. nei ekki ég heldur... en ég er búinn að grafa það upp að hún er frá Hornafirði og kann að spila Living next door to Alice... Glæsilegt :) En þetta virðist samt trekkja því það eru um 200 manns búnir að melda sig. Þetta verður örugglega ótrúlegt stuð. Staðurinn sem þorrinn verður blótaður

Nordiska språk och Antik historia


Líf mitt hefur tekið stakkaskiptum síðastliðnar vikur. Í staðinn fyrir að vita ekki í hvora nösina ég á að bora þá flakka ég á milli Uppsala og Stokkhólms nokkrum sinnum í viku því ég komst inn í nám í háskólanum þar nyrðra með skömmum fyrirvara. Viðfangsefnið að þessu sinni er sænska (grammatik och still) og síðan kúrs sem heitir "Tidiga kulturer i Östra Medelhavsområdet" Þetta er allt saman mjög spennandi og fullt að gera. Ég var að enda við að lesa ákaflega góða bók sem heitir En Komikers Uppväxt e. Jonas Gardell og fjallar hún um ógeðslegt einelti, ekki það að einelti er alltaf ógeðslegt en stundum tók bara virkilega á að lesa þessa bók. Síðan sagði kennarinn okkur að Jonas byggir á reynslu sinni úr bernsku, en hann sjálfur varð fyrir miklu einelti sem barn og unglingur.

4. febrúar 2005

Lestrarmeiddi


Frá unga aldri hefur hennar helsta dægradvöl verið lestur. Nú er svo komið að hún er farin að slasa sig við þessa iðju. Langt sár eftir kjöl bókar niður eftir öllu lærinu og niður á kálfa. Við lesum fyrir hana þegar hún kemur úr leikskólanum, áður en hún sofnar á kvöldin og síðan strax þegar hún vaknar á morgnanna. Þess á milli les hún í leikskólanum sænskar bækur en þar heita sögupersónurnar ekki Lúlli, Einar Áskell eða Tumi heldur er hún að lesa um Ludde, Alfons Åberg og Todde en Emma er allfaf sama góða Emma. Sumar barnabækurnar sem við höfum verðið að lesa eru mjög skrítnar og boðskapurinn eitthvað undarlegur. Við höfum komist að því hjónakornin á Forsvägen 60 að sennilega er enginn sem er eins lestrarhneigður og unginn, nema ef vera skyldi gagnrýnandinn þarna - kolbrún. En mér er það til efs að hún hafi rumskað á næturna og sagt upp úr hálfum hljóðum LESA eða á það að vera LÄSA

20. janúar 2005

Melinda och Melinda


Konan var með saumaklúbb í gær og þá notaði ég tækifærið og fór í bíó. Það hef ég ekki gert síðan ég sá hina ótrúlega slöku The Forgotten
. Í gær fór ég hins vegar að sjá frábæra mynd Melinda och Melinda eins og hún heitir hér í Svíþjóð. Myndin byrjar á því að fólk situr að snæðingi og fjallar um sögu sem það heyrði og hvarnig það túlkar hana. Sumir túlka hana sem drama og aðrir sem kómík. Mjög skemmtileg mynd frá Woody Allen. 3/4