
Konan var með saumaklúbb í gær og þá notaði ég tækifærið og fór í bíó. Það hef ég ekki gert síðan ég sá hina ótrúlega slöku The Forgotten
. Í gær fór ég hins vegar að sjá frábæra mynd Melinda och Melinda eins og hún heitir hér í Svíþjóð. Myndin byrjar á því að fólk situr að snæðingi og fjallar um sögu sem það heyrði og hvarnig það túlkar hana. Sumir túlka hana sem drama og aðrir sem kómík. Mjög skemmtileg mynd frá Woody Allen. 3/4
1 ummæli:
jæja kallinn...það er ekkert verið að segja manni frá þessu!
Þurfti að komast að því að þú værir að blogga, með þvílíkum krókaleiðum ;-)
Skrifa ummæli