Það verður nú að hafa smá húmor til þess að nenna að horfa á sjónvarpið hérna. Við höfum um nokkrar stöðvar að velja en horfum mest á 3,4 og 5 og svo eru ágætir þættir stundum á Discovery þegar maður hefur misst húmórinn.. Þessir raunveruleikaþættir fara stundum alveg með mann. Núna er í algeru uppáhaldi Streight eller Gay uppá svenskuna.. Þetta er byggt upp svipað og Bachelor en uþb helmingur þátttakenda er gay og enginn veit hver það er. Fullt af húmor og fordómum. Hinn þátturinn sem kemst á listann að þessu sinni er þáttur sem nær nýju og áður óþekktu hámarki í lélegheitum.. Melrose Place.. það er svo mikið að gerast í þessum þáttum að manni svimar bara við að horfa á einn þátt, tam þá getur ein persóna gifst, orðið blind, geðveik, og tekin sem gísl í einum og sama þættinum. þeir sköllóttu og fallegu ætti að reyna að toppa þetta.. svo ekki sé talað um East of Eden part V, Lace eða Falcon Crest.