
Já það má nú segja.. inná milli geta þær verið yndislegar. Í þessari heimsókn fór mikið fyrir alls kyns skammarstrikum. Emil kemst ekki með tærnar þar sem þær hafa hælana í þessum efnum. Nokkur dæmi: Á leikskólanum afrekuðu þær að "týna" ca 30 nýniðursett blóm. Krotuðu á sameignina. Dreifa hreinum þvotti samviskusamlega um herbergið. "búa um" hjónarúmið og krassa á dýnuna. Ef til vill má týna eitthvað fleira til en myndin að neðan talar sínu máli
5 ummæli:
Vá hvað þessar eru skömmustulegar!!! púfff
Vona að þetta hafi ekki verið permanent ink...
Já soldið skömmustulegar akkúrat á þessari mynd en Rúna Lóa kann samt ekkert að skammast sín. Hélt bara að þetta væri leikur. Begga: Jú þetta var svo sannarlega permanent ink :(
hahahahahahaha!!!
Bergur: Jag skulle vara försiktig med att ladda upp sådana typer av bilder med tanke på det här.
Skrifa ummæli