
Rúna Lóa er mjög ánægð á nýja leikskólanum. Þetta er 4 leikskólinn sem hún er á eftir að við fluttum hingað til Svíþjóðar. þannig að hún er vön stífri og óhagganlegri 2 vikna aðlögun þeirra Svía. Á leikskólanum eru fleiri strákar en stelpur. Hún er búin að hitta vinkonu sem heitir Gerda og leika þær sér soldið inni á Dockis en það er herbergi þar sem finna má milljón dúkkur og dúkkuföt. Gerda er búin að vera veik í vikunni svo hún tók upp á það ráð að gifta sig honum Elliott í hvítum prinsessukjól með slör og alles. Í næstu viku er svo planað að gifta Gerdu. Sú ákvörðun er reyndar tekin að henni forspurðri. Upp er komið lítið vandamál. Á mánudaginn kemur heitmaður hennar Rúnu Lóu frá Íslandi og þá er næsta víst að hjónaband þetta sé í uppnámi.
3 ummæli:
Hahaha, þetta var skemmtilegt innlit í leikskólann. Og flott mynd af Rúnu Lóu! En ótrúlega dugleg stelpa að aðlagast svona fljótt!
Hæhæ:) Gaman að sjá myndir af litlu frænku og ykkur öllum..og fylgjast aðeins með, þar sem maður hittist ekki alveg nógu oft ;) Vona að allt gangi vel í Svíðþjóð. Alltaf opið hús í Odense ef þið eigið leið hjá ;) Bestu kveðjur úr Danaveldi :)
Takk fyrir boðið og innlitið á síðuna. Bætti þinni heimasíðu við hjá mér. Opið hús fyrir þig og þína fjölskyldu ef þið komið hingað í Feneyjar norðursins.
Skrifa ummæli