Ekki nýr sannleikur, en er það ekki skrítið þegar maður gúgglar orðið "failure" og ýtir á
vogun vinnur vogun tapar. Eða eins og það heitir á sænsku
jag har tur. Prófið sjálf -
GúgglSvo er það soldið íronískt að þegar maður gúgglar á sama hátt orðið "search" fær maður upp Live search hjá Microsoft.
Annars er það að frétta að nú í nótt byrjaði að snjóa og því verðum við Dosti að spýta í lófana og taka fram gönguskíðin. Þann 27. febrúar verður haldið hið árlega
Vasalopp og við erum skráðir til þátttöku í hálfa göngu alls 45km. Hvorugur okkar hefur gengið á svona skíðum svo nokkru nemi.
Mæli með nýrri bók sem ég er að lesa um þessar mundir. Hún heitir
Snabba Cash og er eftir lögfræðingin Jens Lapidus. Þetta er hans fyrsta bók og segir frá 3 gaurum í undirheimum Stokkhólms. Einn þeirra er fangi í Österåker fangelsinu og tekst að flýja þaðan. Síðan er hann á flótta hér í nágrenni okkar. Askúl.