4 störf sem ég hef unnið um ævina
- Mín fyrsta vinna.. handlangari hjá afa. Afi byggði hús Ásgeirs pylsusala í Breiðholtinu. Ég var mest í svona gutli, hreinsa spýtur og draga út nagla. Ég var svo glaður þegar ég fékk útborgað í fyrsta sinn að ég kyssti afa. Aldrei gert það við neinn vinnuveitanda síðar.
- Þvottahús Ríkisspítala. Bæði í hreinum og óhreinum þvotti.. Ekki ósvipað vinnunni á Kirkjusandi nema að þar var kaldara. Kirkjusandur var frystihús þar sem nú standa aðalstöðvar Íslandsbanka við Sæbraut. Þar var líka gaman að vinna.. þessar vinnur fékk ég í gegnum klíkuskap.. Góðir frændur sem hjálpuðu til.
- Byggingaverkamaður við húsaviðgerðir í Æsufellinu. Unnum myrkranna á milli fyrir meiriháttar gott kaup. Í stillönsum á áttundu hæð brutum við niður svalir. Með meitil í hönd á fimmtu hæð fékk ég svo flogakast og ráfaði inn til einhvers sem ég veit ekki hver er. Ekki árennileg sjón það.
- Gæsluvarðhaldsfangelsið Österåker. Þar sem erfiðara er að fást við samstarfsmennina en fangana sjálfa. Stundum eins og að vera kominn aftur í menntaskóla og stundum eins og að vera á geðdeild. Starfið er samt mjög gefandi og jafnframt mjög illa launað.
Þegar ég fór að pæla í þessari spurningu komst ég að því að ég er ótrúlega Knapsu. Því þarna koma inn 2 söngva- og dansamyndir.
- Moulin Rouge.. Vissi varla hvað þessi mynd var um, og fór með semingi á hana í bíó. Titillag myndarinnar hef ég aldrei þolað. Restin af lögunum í myndinni eru hins vegar æðisleg. Ég missti næstum því þvag af geðshræringu og vissi varla hvort ég ætti að grenja eða hlæja... svo ég gerði hvorugt ... svona til þess að halda karlmennsku minni.
- Grís.. endalaust hægt að horfa á hana.. held ég þurfi ekki að útskýra það neitt nánar.
- Pulp Fiction. "Any of you fucking pricks move, and I'll execute every motherfucking last one of ya!" samræðurnar í myndinni eru bara snilld.
- Svo svona ein íslensk að lokum.. Með allt á hreinu.. Þótt Stuðmenn hafi aldrei verið neitt í uppáhaldi þá er þessi mynd toppen. Reyndar koma fast að hælum hennar, Dalalíf, Löggulíf og Íslenski draumurinn.
4 staðir sem ég hef búið á
- Æsufell. Frá rúmlega tveggja ára aldri til 26 ára aldurs tókst mér að búa í öllum stigagöngunum þremur. Yndislegur staður til þess að alast uppá.. allt fullt af krökkum, handbolti á göngunum og Steini Box brjálaður í þessa krakkagemlinga. Hóllinn með skíðaaðstöðuna og móinn neðan við húsið þar sem við söfnuðum í brennu.
- Smáragata 32 Vestmannaeyjum. Langir 10 mánuðir fyrir 13 ára gamlan ungling sem saknaði Breiðholtsins, Fellahellis og umfram allt vinnanna.
- Breiðvangur Borgarfirði Eystri. Frábær 2 ár, kynntist frábæru fólki sem kann allt. fór eiginlega í fyrsta skipti í sveit 29 ára gamall.. Vann við kennslu, dúntekju, í fiski og á bókasafninu. Einstök reynsla.
- Skärgårdsstad Svíþjóð. Mitt núverandi heimili. Búum hér rétt fyrir utan Stokkhólm næstum því í sveitasælu þar sem vetur stendur undir nafni og sumrin eru yndisleg.
- Brasilía, stutt en árangursrík ferð.
- Bjarnarfjörður, frí en samt ekki frí. Námsferð á vegum félags náttúrufræðikennara.. alveg ótrúlega skemmtileg ferð sem ég fór með samkennara mínum frá Borgarfirði til Stranda.
- Prag.. hveitibrauðsdagar..
- Kempervennen, Hollandi.. Ekkert sérstakt veður. en þeim mun meira var maður í sundlauginni og í keilu.
4 síður sem ég skoða daglega
- www.mbl.is
- www.kvv.se
- www.dn.se
- www.ruv.is
Skrítin spurning, ég legg ekki í vana minn að lesa bækur oft. Þær bækur sem ég hef lesið hvað oftast eru barnabækur..
- Bróðir minn Ljónshjarta
- Litla skrímslið sem sagði nei
- Litli prinsinn
- Tumi fer til læknis
4 staðir sem ég vildi vera á núna
- Á íslandi með Sindra mínum
- Á skíðum í Åre eða Sälen, með Sindra og restinni af fjölsk.
- Hawaii, með Sindra og restinni af fjölsk.
- Hvar sem er bara ég og Ragga.
- Ragga sæta
- Linda systir, já þú verður bara að byrja blogga ;)
- Sóley Valdimars
- Hinrik frændi

