28. júní 2005

Midsommar


Fólk kom til okkar í garðinn um hádegisbilið. Að hætti sænskra var étin síld, drukknir snafsar og að sjálfsögðu sungnar ölvísur/snafsavísur eða hvað það nú heitir. Milli 2 og 3 var síðan farið að Rönninge By og horft á fólki í búningum dansa í kringum Midsommarstöngina. Það var mjög kósí stund og þegar allir voru orðnir þreyttir á harmónikkuvælinu og 'Små Grodorna' sem er alltaf sungið við þetta tilefni af ungum sem öldnum þá hélt allur skarinn heim á leið aftur. Nú var tekið til við að grilla og saxa grænmeti og þess háttar. Krakkarnir skemmtu sér fáklædd í sólinni ýmisst á trampólíni nágrannans eða í vatnsbaði eins og sést á myndinni. Takk allir hlutaðeigendur fyrir yndislegan dag :)

22. júní 2005

Dýragarðurinn heimsóttur


Við hjónin fórum með Rúnu Lóu, Hlyn og Óla í Kolmården í gær. þegar við fórum síðast í þennan sama dýragarð þá var Rúna Lóa varla talandi en það var fyrir tæpu einu ári. Nú hins vegar heita öll dýrin Lamadýr eftir heimsókn okkar í sveitina til Henriks og hún heilsaði dýrunum öllum kumpánlega og kvaddi þau með virktum. Öll nema geitunum því hún varð fyrir því óláni að lenda í geitaslag í fyrra, enda vildi hún ekkert klappa þeim að þessu sinni. Þetta var heitasti dagur sem ég hef upplifað hér í Svíþjóð - eiginlega óbærilegt ég er nú hlynntari svalari hitatölum en þó er ég ekkert á því að fá rokið sem ávallt er á Íslandi. Við erum öll farin að maka á okkur sólvörn á hverjum degi PVC frá 2 og upp? 60. Okkur er farið að hlakka mikið til Midsommar en þá er von á fólki hingað í garðinn til okkar. Fullt af skemmtilegu fólki ætlar að koma og svo verður étin síld (það er víst einhver hefð) og drukkinn snafs. Síðan förum við að einhverjum bæ þar sem midsommarstöngin verur reist svo komum við aftur hingað og grillum eða eitthvað.

7. júní 2005

Emilía Þórný Ólafsdóttir


Vinafólk okkar Íris og Óli eignuðust dóttur 4. júlí hún hefur fengið nafnið Emilía Þórný og við hér á Forsvägen 60 óskum þeim að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju. Íris og Óli eru með heimasíðu þar sem hægt er að sjá frumburðinn, myndarstúlka enda á hún ættir að rekja til Aðalvíkur norður á Ströndum.

9. maí 2005

Rösjöbadet


Fórum í göngutúr niður að Rösjö sem er alveg yndislega fallegur staður í um 10 mínútna fjarlægð frá heimilinu okkar. Þarna fóru strákarnir og syntu síðasta sumar. Við treystum okkur ekki til að kasta okkur útí enda ennþá skítkallt í vatninu og í skugga.

brummm brumm


Skemmtilegasta leiktækið hennar Rúnu Lóu á leikvellinum hérna inni í skóginum er bill sem hún þykist keyra um í. Svo er voða gaman að gunga og fara í sandlådan.