
Það er mikið sem gengur á hér hjá okkur hjónakornunum. Við erum búin að vera að leita fyrir okkur að húsnæði og núna erum við búin að finna raðhús í Österåker sem við erum búin að gera tilboð í. Núna sitjum við með krosslagða fingur og bíðum eftir að fasteignasalinn hringi.
Hérer linkur á húsið..
Annars er ég rétt að ná mér núna eftir verstu flogaveikiköst sem ég hef fengið í mörg ár. Þetta virðist því eitthvað vera að versna hjá mér því að það er ekki að sjá að ég hafi gleymd lyfjum eða hegðað mér á einhvern óskynsamlegen hátt á undanförnum dögum. Það sem er skrítið við þetta er að ég hef verið svo ringlaður eftir kastið.. mikill höfuðverkur og gleymskan alveg í hámarki. Gaman það..