Nýjar myndir
vorum að koma frá Svíþjóð og það var mjög yndislegt að vera hjá Möggu og Henrik, Algjörlega óskiljanleg tilviljun að þau skuli flytja til íslands um leið og við flytjum til Svíþjóðar. Rúna Lóa skoðaði leikskólan sinn sem heitir Högåsan og er í 2ja mínútna fjarlægð frá húsinu okkar, hún ærðist þegar hún kom þangað inn.. hvorki meira né minna.. vildi bara strax fara að leika og ég sé hana ekki alveg fíla 2ja vikna aðlögunartíma Svíanna en það verður samt gaman þegar hún byrjar að leika með öðrum krökkum því hún er í mikilli þörf fyrir það. Ég setti inn myndir af nýja húsinu í Skärpäng á myndasíðuna ásamt nokkrum af Rúnu Lóu og Röggu. Við fórum nebblega í heimsókn á sunnudaginn og leigjendurnir voru svo sæt að sletta í eina rjómaköku með jarðarberjum úr garðinum.. Svo þegar við komum í haust vera eplin sennilega orðin þroskuð og fín :)
24. júní 2004
8. júní 2004
að flytja til täby
Täby er bær rétt fyrir utan Stokkhólm eiginlega svona Garðabær eða Mosfellsbær þeirra helv. nullotterna en það eru stokkhólmsbúar kallaðir af hinum. Öll númer í Stokkhólmi byrja nebblega á 08.. þetta sagði Finnur mágur mér en hann býr í Skövde með sinni heittelskuðu en þau eru að flytja til Cph því er nú helv. ver. Þegaar við við Ragga vorum að ganga frá ráðningunni í Sverige í síðustu viku skoðuðum við líka húsnæði. 6 stk. og leist okkur strax vel á það fyrsta og reyndar eitt annað þau eru bæði í Täby annað í Skarpäng og hitt í Gribbylund. Þetta eru algjör fantasíu heimili eins og klippt út úr skáldsögu e. Astrid Lindgren. En í fyrra húsinu sem við erum spenntari fyrir er stór garður, og dúkkúhús fyrir Rúnu Lóu og og jarðaber handa frúnni svo ekki sé talað um fimm mínútur í næstu baðströnd.

28. maí 2004
Pixies voru bara Æðisleg

Það var svo merkilegt á þessum tónleikum að sjá öll þessi andlit sem maður hefur ekki séð í fjölda ára en kannast við en þekkir ekki neitt... Það er á þessum stundum sem maður áttar sig á því að Ísland er bara pínulítið sker. Við komum akkurat á rétta tímanum á tónleikana Ghostigital var að spila síðasta lagið sitt og ég hefði ekki viljað koma mikið fyrr, meira segja hefði verið betra að koma þegar byrjað var að klappa fyrir þessum skemmtilegu róturum sem segja EINN, TVEIR af svo mikilli kunnáttu í míkrafóninn að maður roðnar og fær gæsahúð í einu. Pixies tóku þetta fremur rólega framan af en keyrðu svo allt prógrammið í botn og það tók svona rúman klukkutíma og gæsahúðin hélt áfram að hríslast niður bakið þegar lögunum fjölgaði. Eftir tónleikana var andrúmsloftið eins og maður ætti að fara í eftirápartý en það var enginn sem bauð - skrítið ..

26. maí 2004
Stokkhólmur
Ég ætla ekkert að fara að afsaka það að ég hafi ekki tjáð mig neitt í hálfan mánuð.. svona verður þetta bara kannski :) Boston var æðisleg, Rúna Lóa lék sér á bleyjunni í Boston Common húfulaus og fílaði sig í botn og skoðaði íkorna. Á meðan við hjónakornin vorum við úti barst minni elskulegu eigikonu atvinnutilboð sem eiginlega er ekki hægt að hafna, en það þýðir líka að við verðum að flytja okkur um set úr Kópavoginum góða til Stokkhólms og læra svenska.. Það sem er nú svo Íronískt við þetta allt saman er að um leið og við gengum inn um dyrnar á Borgarholtsbrautinni beið mín bréf þar sem ég hafði verið samþykktur inní meistaranám hérna á Íslandi í víðskiptadeildinni í stjórnun og stefnumótun.. þetta er eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á. Nú er ég á fullu að finna eitthvað sambærilegt í Stokkhólmi og mér sýnist handelshögskolan vera sá skóli sem er hvað skástur.. en ég veit ekkert svo sem í minn haus í þessum málum. Við hjónin ætlum að fara út eftir helgi og skoða aðstæður og jafnvel skoða einhver hús en það ku vera mjög erfitt að fá húsnæði í Stokkhólmsléni. Hvað um það við erum með fólk frá SAS í því að redda húsnæði þannig að ég hef ekki beint áhyggjur af því ;) Pixies í kväll.. Black Francis var víst frábær í gær vona að hann verði einnig í stuði í kvöld..

12. maí 2004
Boston með Búbbið
þá er það orðið offissíjelt.. Ég fer til Boston með frúnni ásamt Rúnu Lóu. Hvað er hægt að gera í Boston, ég hef bara einu sinni komið til USA áður en það var fyrir 8 árum en þá fór ég í útskriftarferð með félögum mínum í HÍ og ég er ekki enn útskrifaður :( Þá fór ég til WashingtonDC og skoðaði fjöldann allan af söfnum, ég ætla ekki að gera það núna, nein takk.. Ég hef meiri áhuga á að kíkja á Boston University og forvitnilegt væri einnig að kíkja á barnasafnið. Annars fer maður bara þarna út og nýtur lífsins keyrir Rúnu Lóu um í kerrunni og sýnir henni hvar Amma Rúna lærði í Boston og svoleiðis.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)