28. maí 2006

Ef þú kemur nær þá...


Ég slæ þig í andlitið ef þú tekur eina mynd í viðbót. Fórum í Hagaparken eins og ég var búinn að koma að hér áður. Við tókum nokkrar myndir og þær getið þið nálgast hér til hliðar í Flicr albúminu. Ragga er á leið til Barcelona á morgun og kemur heim uppfull af flamengó og Sangría, Ólé..

Blómabarn


Fórum í smá göngutúr í dag. Hlyni fannst þetta nú eitthvað asnalegt og nennti ekki að ganga lengi með okkur. Rúna skemmti sér hins vegar mjög vel og fór á leikvöllinn og rólaði og renndi sér í rennibrautinni. Fjölskyldan fór í Hagaparken í gær og þar hittum við fullt af Íslendingum. Íslendingafélagið er í mikilli sókn og stóð fyrir skemmtilegum degi þar sem farið var í brennó og einhversskonar fótbolti leikinn. Betri mæting var en ég gat ímyndað mér miðað við það að það var rigningarlegt og samt ekkert of kalt. Hendi kannski inn myndum frá Hagaparken fljótlega ;)

11. maí 2006

Púsl og pylsur



Stundum getur verið erfitt að koma öllu heim og saman. Ragga ferðast mikið og ég vinn óreglulegan vinnutíma. Hlynur er duglegur að sækja Rúnu Lóu á leikskólann. Hlynur fór í fermingarbúðir um daginn og Ragga hefur verið mikið á flakki í maí. Þá kemur sér vel að eiga góða vini. Dosti og Anna Sóley skutluðu Hlyni á Arlanda og Björn og Lóa sóttu Rúnu í leikskólann daginn eftir. Við erum þeim innilega þakklát fyrir. Á sunnudaginn hittumst við síðan öll eftir mikið púsluspil og átum saman pylsur og frábæran kjúkling sem Lóa eldaði. Lystakokkur.

í nágrenninu.



Þriggja gröfu vegur. Við enda hans eru gamlar námur sem var lokað fyrir löngu síðan. Þar er að finna mjög fallega steina og ótrúlega mikið drasl. Gamlir skúrar, eldgamlir lestarteinar og svo nýrra dót eins og heimilistæki sem hafa lokið sinni þjónustu og svo þessi skemmtilegi Volvo sem er enn á númerum. Gaman fyrir mann eins og mig sem fannst gaman að fara á gömlu haugana og skoða drasl og rusl.

23. apríl 2006

páskakellingar

Påskkärringar eða páskakellingar eru sniðugt fyrirbæri. Það er smá Hallóvín blær á þessu. Þær eyða margar ómældum tíma í að undirbúa sig með því að búa til páskakort sem þær dreifa í hús. Þær koma mjög sætar eins og þið sjáið og banka upp á, bjóða manni uppá kortið og syngja lítið lag og fá að launum smá gotterí. Það komu hér tveir hópar af páskakellingum og í fyrsta skipti vorum við algerlega óundirbúin eða.. reyndar var Maggasin í Uppsölum búin að minna okkur á þetta en það var gleymt um leið. Þannig að það voru soldið vonsviknar stúlkur sem fóru héðan burt en við fengum engu að síður páskakort. Síðari hópurinn fékk svo eitthvað fyrir sinn snúð. Litla páskakellingin tók svo ekki annað í mál en að fara uppstríluð í boð til Uppsala á föstudaginn langa. Þið kunnið að velta því fyrir ykkur hvort það séu engir páskakallar.. jú það er víst.. veit ekki alveg hvað þeir heita.. kannski påskgubbar, en ég á eftir að sjá svoleiðisfyrirbæri. Upplifun mín á þessu er einhversskonar blanda af Grýlu og hallóvín.. nema með vinalegra yfirbragði.