Það er eins og hann sé að hugsa á þessari mynd hvort henni sé aldrei þrifið í framan þessari dúllu. En það vill nú svo til að það eru til fáar myndir af henni þar sem hún er alveg laus við matarleifar, hor eða annan ósóma.Sindri er sem sagt hér. Þvílíkir fagnaðarfundir. Í gær gerðum við mest lítið fórum í göngutúr hér í nágrenninu og horfðum á vorið vakna, meðan Róa var upptekin við að moka og bjóða í kaffi á leikvellinum. Daginn þar á undan fórum við svo í langan skemmtilega bæjarferð gengum um miðbæjinn og fórum í Humlegården sem er ákaflega skemmtilegur staður fyrir börn. Í dag stendur fyrir dyrum að bruna til Uppsala og éta mat, væntanlega bland af íslenskum og sænskum páskum. Þar hittir Sindri skólafélaga sinn úr Melaskóla hann Tómas frænda Röggu. Gaman það ;D

