23. apríl 2006

yfirfærsla

Þrátt fyrir skemmtilegan tíma með pabba sínum og bræðrum þá er hún farin að hlakka til að fara í leikskólann aftur. Í gær vorum við Rúna að horfa á sjónvarpið ( sem við gerum að öllu jöfnu alls ekki, eða þannig) Hún benti á þáttarstjórnandann sem stýrði einhversskonar spurningarleik og sagði "hvað er hann með hér" og benti svo á kinnina á sér. Þáttarstjórnandinn var með míkrafón eins og fastan uppvið vangann eins og Whitney Houston var vön að hafa þegar hún var og hét. Mér finnst þetta mjög magnað hjá ekki 3ja ára stelpu að yfirfæra svona frá kallinum á sjálfa sig.

Páskarnir búnir og Sindri farinn heim


Þá eru páskarnir búnir. Súkkulaðiát huggulegheit og skemmtun. Sindri fór heim í gær og Hlynur kom í fyrradag, þá fórum við í Heron City sem er einhversskonar Mall þar sem er að finna flest annað en fataverslanir. Við brugðum okkur í keilu en þarna er einnig hægt að fara í bíó. Við Sindri gerðum það nokkrum dögum fyrr og sáum Narníu sem er frábær mynd. Sindri kláraði svo næstum bókina um Nornina, ljónið og klæðaskápinn á mettíma áður en hann fór.

Pisskiss á steini


Kátir sveinar Hlynur, Kristinn og Arnar pissa uppi á steini í garðinum hennar Eyrúnar í páskaveislu suðurdeildar Íslendingafélagsins í Stokkhólmi. (mynd frekar léleg þar sem hún er tekin út um glugga, en mómentið ágætt)

14. apríl 2006

Sindri loksins kominn.

Það er eins og hann sé að hugsa á þessari mynd hvort henni sé aldrei þrifið í framan þessari dúllu. En það vill nú svo til að það eru til fáar myndir af henni þar sem hún er alveg laus við matarleifar, hor eða annan ósóma.
Sindri er sem sagt hér. Þvílíkir fagnaðarfundir. Í gær gerðum við mest lítið fórum í göngutúr hér í nágrenninu og horfðum á vorið vakna, meðan Róa var upptekin við að moka og bjóða í kaffi á leikvellinum. Daginn þar á undan fórum við svo í langan skemmtilega bæjarferð gengum um miðbæjinn og fórum í Humlegården sem er ákaflega skemmtilegur staður fyrir börn. Í dag stendur fyrir dyrum að bruna til Uppsala og éta mat, væntanlega bland af íslenskum og sænskum páskum. Þar hittir Sindri skólafélaga sinn úr Melaskóla hann Tómas frænda Röggu. Gaman það ;D

Kisurnar í gula húsinu

Í gærmorgun vaknaði litla skottan og talaði bara um kisurnar í gula húsinu. Hún var viss um að þær væru svangar. Sótti því sínar kisur sem er ljón og síberískur sleðahundur og gaf þeim að borða þar sem Pompe hundurinn hans Tómasar frænda hennar fær sinn mat. Auðvitað fékk hún sér svolítið í leiðinnni.