22. júní 2005

Dýragarðurinn heimsóttur


Við hjónin fórum með Rúnu Lóu, Hlyn og Óla í Kolmården í gær. þegar við fórum síðast í þennan sama dýragarð þá var Rúna Lóa varla talandi en það var fyrir tæpu einu ári. Nú hins vegar heita öll dýrin Lamadýr eftir heimsókn okkar í sveitina til Henriks og hún heilsaði dýrunum öllum kumpánlega og kvaddi þau með virktum. Öll nema geitunum því hún varð fyrir því óláni að lenda í geitaslag í fyrra, enda vildi hún ekkert klappa þeim að þessu sinni. Þetta var heitasti dagur sem ég hef upplifað hér í Svíþjóð - eiginlega óbærilegt ég er nú hlynntari svalari hitatölum en þó er ég ekkert á því að fá rokið sem ávallt er á Íslandi. Við erum öll farin að maka á okkur sólvörn á hverjum degi PVC frá 2 og upp? 60. Okkur er farið að hlakka mikið til Midsommar en þá er von á fólki hingað í garðinn til okkar. Fullt af skemmtilegu fólki ætlar að koma og svo verður étin síld (það er víst einhver hefð) og drukkinn snafs. Síðan förum við að einhverjum bæ þar sem midsommarstöngin verur reist svo komum við aftur hingað og grillum eða eitthvað.

7. júní 2005

Emilía Þórný Ólafsdóttir


Vinafólk okkar Íris og Óli eignuðust dóttur 4. júlí hún hefur fengið nafnið Emilía Þórný og við hér á Forsvägen 60 óskum þeim að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju. Íris og Óli eru með heimasíðu þar sem hægt er að sjá frumburðinn, myndarstúlka enda á hún ættir að rekja til Aðalvíkur norður á Ströndum.

9. maí 2005

Rösjöbadet


Fórum í göngutúr niður að Rösjö sem er alveg yndislega fallegur staður í um 10 mínútna fjarlægð frá heimilinu okkar. Þarna fóru strákarnir og syntu síðasta sumar. Við treystum okkur ekki til að kasta okkur útí enda ennþá skítkallt í vatninu og í skugga.

brummm brumm


Skemmtilegasta leiktækið hennar Rúnu Lóu á leikvellinum hérna inni í skóginum er bill sem hún þykist keyra um í. Svo er voða gaman að gunga og fara í sandlådan.

4. maí 2005

húsakaup og epilepsia


Það er mikið sem gengur á hér hjá okkur hjónakornunum. Við erum búin að vera að leita fyrir okkur að húsnæði og núna erum við búin að finna raðhús í Österåker sem við erum búin að gera tilboð í. Núna sitjum við með krosslagða fingur og bíðum eftir að fasteignasalinn hringi. Hér
er linkur á húsið..
Annars er ég rétt að ná mér núna eftir verstu flogaveikiköst sem ég hef fengið í mörg ár. Þetta virðist því eitthvað vera að versna hjá mér því að það er ekki að sjá að ég hafi gleymd lyfjum eða hegðað mér á einhvern óskynsamlegen hátt á undanförnum dögum. Það sem er skrítið við þetta er að ég hef verið svo ringlaður eftir kastið.. mikill höfuðverkur og gleymskan alveg í hámarki. Gaman það..