5. apríl 2005

Stuð, stuð, stuð..


Ég er í svaka stuði..

Borða á pallinum


AAAaahhh oppnna svo.. Auðvitað eru allir með þegar borðað er á pallinum í fyrsta skiptið í sumar (eða ætti ég að segja vor) Baby Born og Nassi fá að borða líka.

Dæmigert veðurblaður


Þá erum við í Sverige aftur eftir geðbiðala Íslandstörn. Rúna Lóa varð ákaflega ánægð að komast heim í húsið sitt og hefur verið úti í garði síðan við komum heim. Þegar við komum til baka bjuggumst við við að vorið væri komið og allur snjór farinn en það var öðru nær. Garðurinn var fullur af snjó en þokkalega heitt í veðri miðjan daginn. Á sunnudaginn síðasta borðuðum við úti á palli og veðrið fór 17° og en það er enn soldið kalt í skugganum. Jói Páll gisti hjá okkur frá fimmtudegi til mánudags en hann var í æfingabúðum í Aikido hjá móðurfélagi sínu hér í Stokkhólmi sem heitir http://www.iyasaka.se/ Seinna skruppum við Jói svo á krá sem heitir Vasa Café og bar, eftir mjög góðan göngutúr um mér liggur við að segja allan Stokkhólm. Svo fórum við heim og settum í þvottavél og þurrkara.. ákaflega týpískt..

3. mars 2005

Ísland og söknuður


Nú styttist í það að við komum til Íslands og við erum farin að hlakka alveg rosalega mikið til. Við hörum verið að pæla í því hvað við ætlum absolut að gera þegar við komum til Íslands en það eru nokkrir hlutir sem eru MJÖG ofarlega á lista hjá okkur núna. Eins og tam að fara í sund. Og jafnvel Röggu er farið að langa í lambakjöt? skrítið hvernig fjarlægðin getur farið með mann. Mér segir sá hugur að ísbúðin á Hagamelnum verði heimsótt og svo er búið að ákveða að fara á Súfistann og drekka kaffi og lesa ísl. blöð í kósí. En það sem mestu máli skiptir er auðvitað að hitta alla ættingjana og vinina sem við erum farin að sakna alveg ótrúlega mikið :(

28. febrúar 2005

veikindi og snjókoma


Það er ástand á heimilinu núna. Nú liggjum við öll í veikindum, ég slapp lengi vel en í gær fann ég að þetta var að hellast yfir mig. Ragga hefur þó verið veikust og núna er byrjuð vika 2 í hennar veikindum. Rúna Lóa hefur trítlast þetta með, verið með hita og nefrennsli en verið nokkuð hress að venju. Á meðan þessum veikindum hefur staðið hefur snjóað alveg fáránlega mikið og nú skil ég loksins ástæðuna fyrir snjóblásaranum í bílskúrnum - svakalegt tæki.